Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. maí 2026 13:00 Benedikt Hjartarson og Gunnar Gunnarsson eru eigendur Hagabakarís. vísir/anton brink Eitt rótgrónasta bakarí landsins kveður nú sjónarsviðið eftir um 65 ár í rekstri. Eigendur hafa ákveðið að segja það gott og taka fram að breyttar neysluvenjur hafi sett strik í reikninginn.
Hagabakarí hefur staðið í Breiðholti við Hraunberg um áratugaskeið og er einstaklega vel liðið af íbúum á svæðinu og þó víðar væri leitað. Eigendur hafa þó ákveðið að loka eftir farsælan rekstur um árabil en fastagestir hafa lagt leið sína hingað í allan dag til að smakka á kruðeríi kappanna og kveðja með sorg í hjarta. Hér fyrir neðan má sjá þegar fréttastofa kíkti í heimsókn á einum síðasta opnunardegi bakarísins. Bakaríið verður opið í um viku til viðbótar áður en skellt verður í lás. Búið að vera brjálað að gera „Þetta birtist í Morgunblaðinu í morgun og það hefur bara verið vitlaust síðan. Þú sást það hérna frammi þegar þú komst inn að það er bara eyðimörk, tómar hillur. Ég átti ekkert von á þessu. Svo hefur fólk verið að koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa okkur. Síminn hefur ekkert stoppað heldur. Það eru allir að fá fréttir af þessu. Þessir viðskiptavinir okkar hérna frammi eru ekki bara viðskiptavinir. Þetta eru orðnir vinir okkar,“ sagði Benedikt Hjartarson sem er eigandi Hagabakarís ásamt Gunnari Gunnarssyni. Faðir Gunnars opnaði bakaríið upprunalega í bílskúr við Tómasarhaga í Vesturbæ árið 1961 og bakaði tvíbökur og kringlur fyrir Sambandið. Bakaríið fluttist síðan búferlum í Kópavog áður en það endaði í Breiðholti þar sem það hefur staðið frá níunda áratugnum. Gunnar byrjaði snemma að vinna í bakaríinu og tók síðan við rekstrinum af föður sínum. „Benedikt byrjaði að vinna hjá föður mínum 1981. Þar kynntumst við fyrst. Ég er búinn að vera hérna í 40 ár og 46 ár í Breiðholtinu. Þetta er fjölskyldufyrirtæki. Foreldrar mínir féllu frá 2003. Bróðir minn var hérna með mér og svo vildi hann út og þá spurði ég Benna hvort hann vildi slá til og við erum búnir að vera hérna í tæp tuttugu ár saman,“ segir Gunnar. Er ekki erfitt að kveðja? „Nei,“ segir Gunnar „Nei, það er bara búinn að vera það langur aðdragandi að þessu. Þetta var aldrei meiningin hjá okkur. Það komu bara aðilar hérna til okkar fyrir nokkru og vildu kaupa þetta af okkur. Þá kom þessi hugmynd að selja bara og hætta. Síðan féllu þeir allir frá kauptilboðinu. Við ákváðum bara að láta þetta gott heita,“ segir Benedikt. Snúa sér að mótorhjólinu og íþróttum Þeir segja breyttar neysluvenjur að hluta til ástæðuna fyrir lokun. Þeir benda á að áður fyrr voru sjö bakarí í Breiðholtinu en nú standi Hagabakarí eitt eftir í hverfinu. „Það eru ekki eins miklar kröfur um gæði. Núna er fólki saman hvort það kaupi plastpokabrauð, bakað einhvern tímann eða eldgamlar kökur. Nú flyst þetta bara allt inn í stórmarkaði. Við erum náttúrulega orðnir fullorðnir. Reksturinn er að verða þyngri og kannski gott að þurfa ekki að vera tíu tíma hérna á hverjum degi. Það var bara kominn tími á þetta,“ segir Benedikt. Þeir sitja þó ekki aðgerðarlausir og ætla að nýta tímann til að sinna barnabörnunum. Þá ætlar Benedikt að snúa sér að auknum krafti að íþróttum og Gunnar að mótorhjóli sem hefur beðið hans inni í bílskúr. Þá munu þeir halda áfram að þjónusta stóra viðskiptavini með bakarísvörum um einhverja tíð.
Bakarí Reykjavík Verslun Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Sjá meira