Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 23:11 Rory McIlroy er með blöðru. Emilee Chinn/Getty Images Blaðra undir tánögl Rory McIlroy hefur verið kylfingnum til mikils ama í aðdraganda PGA meistaramótsins. McIlroy hætti aftur snemma á æfingu dagsins, lokaæfingunni áður en mótið hefst.
Tvíríkjandi Masters-meistarinn mætir kokhraustur til leiks á PGA meistaramótið eftir gott gengi undanfarið og þykir sigurstranglegastur ásamt Scottie Scheffler. Það yrði þriðji sigur McIlroy á PGA meistaramótinu en hann vann það einnig árin 2012 og 2014. McIlroy hefur hins vegar verið að glíma við meiðsli, ef svo mætti kalla. Á síðustu tveimur æfingum í aðdraganda keppninnar hefur hann hætt snemma vegna sársauka í fætinum. Hann hætti eftir aðeins þrjár holur af æfingahringnum í gær. „Ég er með blöðru undir litlu tánöglinni á hægri færi. Mér er aðeins illt í þessu en þetta verður allt í lagi,“ sagði McIlroy svo við Reuters í morgun. Hann greindi einnig frá því að hann hefði hækkað sig um eina skóstærð til að minnka álagið á blöðrunni en samt fundið fyrir sársauka. „Ég reif tánöglina bara af í gærkvöldi. Þetta pirraði mig svo mikið. Ég lagðist bara í baðið og fékk hana til að mýkjast. Svo sprengdi ég blöðruna. Mér líður betur í dag,“ sagði McIlroy einnig í morgun. Hann virðist þó ekki alveg hafa jafnað sig því á æfingu dagsins hætti hann einnig snemma. McIlroy sást fikta eitthvað við hægri fótinn, settist í grasið og klæddi sig úr sokknum áður en hann hélt snemma upp í hús. McIlroy hefur leik á PGA meistaramótinu klukkan 12:40 að íslenskum tíma á morgun. Hann verður í holli með Jon Rahm og Jordan Spieth. Bein útsending frá PGA meistaramótinu verður á Sýn Sport Viaplay frá klukkan 11:00 á morgun.
PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira