Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 17:32 Garrick Higgo var um mínútu of seinn og fékk tveggja högga refsingu. Raj Mehta/Getty Images Þrátt fyrir að vera atvinnumaður í faginu mætti Garrick Higgo of seint til leiks á PGA meistaramótinu í morgun. Fyrir það fékk hann tveggja högga refsingu.
Higgo átti að hefja leik klukkan 18 mínútur yfir 7 í morgun að staðartíma, eða klukkan 18 mínútur yfir 11 á íslenskum tíma. Hann var í holli með fyrrum risamótsmeistaranum Shaun Micheel og Michael Brennan sem spilar á PGA mótaröðinni. Suður-Afríkumaðurinn hafði verið að æfa sig á æfingasvæðinu en skilaði sér ekki á réttan stað í tæka tíð, sumir vilja meina að kylfusveinn hans hefði átt að passa betur upp á þetta. Higgo var um mínútu of seinn þegar hann mætti á fyrsta teig, klukkan 19 mínútur yfir 7. Garrick Higgo was penalized two strokes for being late to the tee for his opening round at the PGA Championship. pic.twitter.com/WFGX7fkLRE— Golf on CBS ⛳ (@GolfonCBS) May 14, 2026 Parið sem hann náði á fyrstu holu breyttist því í tvöfaldan skolla en Higgo var búinn að ná höggfjöldanum niður á par eftir níu holur. Þetta hefði líka getað verið mun verra. Ef Higgo hefði mætt fimm mínútum of seint hefði hann verið dæmdur úr leik. Higgo er í 85. sæti heimslistans og hefur tvisvar unnið mót á PGA mótaröðinni. Hann er að taka þátt í PGA meistaramótinu í þriðja sinn. Á síðasta ári hafnaði hann í 55. sæti. PGA meistaramótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay alla helgina.
Golf PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira