„Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 18:54 Rory McIlroy átti ekki eins sterka byrjun og á Masters-mótinu. Langt því frá. Emilee Chinn/Getty Images Rory McIlroy hefur verið mikil til umræðu í aðdraganda PGA meistaramótsins og norðurírski kylfingurinn átti „hrikalegan“ fyrsta hring á Aronimink golfvellinum í Pennsylvaníu í dag.
McIlroy hefur þurft að hætta snemma á æfingum síðustu tvo daga vegna meiðsla. Hann var með blöðru undir tánöglinni á hægri fæti sem truflaði hann illa. Þrátt fyrir þau vandræði kvaðst McIlroy klár í slaginn. Annað kom á daginn því McIlroy var langt frá því að sýna sitt besta í dag og sénsinn á að vinna tvö stórmót í röð snarminnkaði undir lok hringsins. Rory McIlroy's opening round at The Masters:• 6 birdies• 1 bogey• 5 birdies in last 11 holesOpening round at PGA Championship:• 2 birdies• 6 bogeys• 5 bogeys in last 6 holes pic.twitter.com/VEbEuQXv6L— Underdog Golf (@UnderdogGolf) May 14, 2026 McIlroy byrjaði á 10. holu og fékk strax skolla en svaraði síðan með fugli á 11. holu. Eftir það lék hann á pari næstu holur og var nálægt því að ná fugli á 18. holu en klikkaði á púttinu. Á seinni níu holunum, eða 1. til 9. holu, lenti McIlroy hins vegar í hrikalegum vandræðum. Hann fékk fimm skolla á síðustu níu holunum, þar af fjóra í röð. Hann lauk því fyrsta hringnum á fjórum höggum yfir pari og er jafn í 119. sæti sem stendur. „Þetta var hrikalegur dagur,“ sagði McIlroy við Sky Sports. McIlroy getur þó huggað sig við það að hann er ekki í verri málum en Bryson DeChambeau, sem lauk fyrsta hringnum á sex höggum yfir pari. McIlroy var í holli með Jon Rahm og Jordan Spieth. Annað stjörnuholl leggur nú af stað upp úr klukkan sjö en þar verða Scottie Scheffler, Matt Fitzpatrick og Justin Rose. Scottie Scheffler begins his quest to go back-to-back at the PGA Championship. 🔥🏆#PGAChamp pic.twitter.com/xVt0pO79Pq— PGA Championship (@PGAChampionship) May 14, 2026 Efstu menn eru þremur höggum undir eftir fyrsta hring en stöðuna má finna hér. PGA meistaramótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay alla helgina.
Golf PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira