Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Lovísa Arnardóttir skrifar 15. maí 2026 14:19 Frambjóðendur spurðu um allskonar verkefni og stefnu þegar þau fengu tækifæri til að spyrja hvert annað. Vísir/Vilhelm Frambjóðendur nýttu tækifærið og spurðu um aldraða, muninn á því að vera í minni- og meirihluta og um gæluverkefni borgaryfirvalda þegar þeir fengu tækifæri til að spyrja hver annan spurninga í oddvitakappræðum Sýnar í Reykjavík á miðvikudaginn.
Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, byrjaði á því að spyrja Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, um kaup á Félagsbústöðum og mögulega hópa sem geti verið að „svindla á kerfinu“. „Þetta eru okkar viðkvæmustu hópar sem eru loksins komnir í húsnæðisöryggi, eru búnir að setja sér rætur og eru að skapa sér líf. Hvernig getum við treyst ykkur til að viðhalda félagslega kerfinu og að treysta fólki húsnæðisöryggi sem er í þessari stöðu?“. Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn alltaf hafa staðið með félagslega húsnæðiskerfinu og Félagsbústöðum en þau hefðu áhyggjur af rekstri félagsins. Hann standi í járnum í dag og það hafi komið fram í gögnum sem flokkurinn hefur kallað eftir að það sé ákveðinn hópur, ekki stór hópur, inni í Félagsbústöðum sem sé með yfir eina eða tvær milljónir í mánaðarlaun sem búi í félagslega kerfinu. Einstæðar mæður bíða „Á meðan kannski einstæðar mæður bíða með börnin sín á biðlista. Við viljum laga þetta. Við viljum styðja fólk sem það getur aftur til sjálfshjálpar og þeir sem það geta, við viljum gefa þeim kost á að kaupa sínar eignir,“ segir Hildur og að flokkurinn sé ósammála því módeli sem hafi verið byggt upp fyrir félagsbústaði. Það sé ósjálfbært. Guðmundur Ingi spurði Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, hvort þau ætluðu að berjast „af sama krafti á móti bættum kjörum eldri borgara“ í Reykjavík eins og þau hafa gert á þingi og var þá að vísa til mótstöðu flokksins gegn breytingum á tengingu bóta við launavísitölu. Ari sagði spurninguna undarlega setta upp og að hann væri að vísa til umdeildra breytinga á bótakerfinu. „Miðflokkurinn í Reykjavík mun berjast mjög fyrir bættum kjörum eldri borgara í Reykjavík,“ svaraði Ari og að stefnu um það væri að finna í þeirra stefnumálum. Til dæmis vilji flokkurinn að eldri borgarar geti búið heima eins lengi og þeir vilja og geta og gefa þeim afslátt af fasteignagjöldum. Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, spurði Björgu um orðræðu Viðreisnar um að borgin ætti að láta af gæluverkefnum og fara aftur í kjarna sinn. Hún nefndi þrjú gæluverkefni sem hún myndi vilja skera niður. Það fyrsta sem Björg nefndi var leikskólinn Brákarborg en honum þurfti að loka vegna hönnunargalla fyrir um ári síðan og hann er enn ekki opinn börnum. Í öðru lagi nefndi Björg stækkun selalaugarinnar og í þriðja lagi blað um tilmæli um barnaafmæli. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, spurði Silju Sóleyju um ferð eins stjórnarmeðlimar til Norður-Kóreu. Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í borginni, sagði spurningu Einars Þorsteinssonar, fyrrverandi borgarstjóra og oddvita Framsóknar, um Norður-Kóreu heimsókn félagsmanns Sósíalista vera fáránlega. Hún sagði ekki hægt að bendla flokkinn við ríki líkt og Norður-Kóreu og að spurning Einars væri „strámaður“. Fjallað var um spurninguna sérstaklega í fréttinni að neðan. Ari spurði Björgu um skattahækkanir og hvort flokkurinn ætlaði að hækka skatta í borginni eins og hann hefur gert í ríkisstjórn. Björg svaraði þessu og benti Ara á að útsvar væri í hámarki í Reykjavík auk þess sem hún ætlaði að lækka skatta á atvinnuhúsnæði. Björg spurði Sönnu um muninn á að vera í minnihluta og meirihluta. Sanna sagði helsta muninn aðgengi að upplýsingum og aðstöðu. Hún hafi eftir að hún komst í meirihluta komist að fundarherbergjum í ráðhúsinu sem hún hafi áður ekki vitað af. Sanna spurði Björgu hverju hún væri stoltust af í meirihlutasamstarfi Viðreisnar síðustu tvö kjörtímabil, til ársins 2025. Björg sagðist stolt af verkum Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur oddvita Viðreisnar og Pawel Bartoszek, fyrrverandi borgarfulltrúa. Ánægðust sé hún með eigendastefnu í B-hluta og að það hafi verið sett upp mælaborð í stjórnsýslunni. „Það er ekki hægt að átta sig á stöðunni ef það er ekki mælaborð.“ Hvað muni breytast með D og B? Pétur spurði Hildi um aldraða og öryrkja og spurði hvort hún styðji við frekari einkavæðingu á þjónustu við aldraða eða hvort hún vilji halda áfram uppbyggingu í þeirra þágu. Hildur svaraði og sagði að hún þyrfti reglulega að útskýra einkavæðingu fyrir Samfylkingarfólki. Það sé ekki sama að einkavæða og auka einkarekstur. Hún styðji uppbyggingu í samráði við hið opinbera en einnig í samvinnu við einkaaðila. Þá sagði hún flokk sinn vilja fjölga íbúðum og þjónustukjörnum og bæta þjónustu við þennan hóp með mörgum leiðum og nefndi til dæmis upphitaða stíga. Hildur spurði svo að lokum Einar um meirihlutasamstarf og hvað hann teldi að myndi batna færi hann í meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Einar sagði pólitískar línur liggja fyrir og að hann hefði kynnst því af eigin raun að vinna með flokkum sem ekki deildu hans pólitísku sýn. „Það var rosalega erfitt og það endaði með því að við sprengdum meirihluta. Það var ekki auðveld ákvörðun og hún var tekin að vandlega ákvörðuðu máli,“ sagði hann og að hann hefði metið hagsmuni íbúa betur en valdastólana. Hann sagðist telja þörf á nýju upphafi með nýjum flokkum. Þannig sé ákallið og hann voni að það takist eftir kosningar.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Píratar Vinstrið Miðflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Viðreisn Tengdar fréttir Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Kosningabaráttan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hefur einkennst af gervigreind, samfélagsmiðlabólum, endurunnu efni og upplýsingadrifnum auglýsingum þar sem frambjóðendur horfa mikið hver til annars. Stofnandi auglýsingastofunnar Tvist segir framboðin ekki endilega nýta sterkustu vopn auglýsinganna. 15. maí 2026 12:30 Hnífjafnt til hægri og vinstri Kjósendur í Reykjavík eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort myndaður verði meirihluti til hægri eða vinstri að kosningum loknum, ef marka má nýja könnun Maskínu. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri. 15. maí 2026 11:42 Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Landsmenn munu ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa til sveitarstjórna víðsvegar um landið. Kjörstaðir verða opnaðir um allt land í fyrramálið, flestir klukkan níu og verður þeim í flestum tilfellum lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi kosningarnar og framkvæmd þeirra. 15. maí 2026 07:03 Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Sjá meira
Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Kosningabaráttan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hefur einkennst af gervigreind, samfélagsmiðlabólum, endurunnu efni og upplýsingadrifnum auglýsingum þar sem frambjóðendur horfa mikið hver til annars. Stofnandi auglýsingastofunnar Tvist segir framboðin ekki endilega nýta sterkustu vopn auglýsinganna. 15. maí 2026 12:30
Hnífjafnt til hægri og vinstri Kjósendur í Reykjavík eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort myndaður verði meirihluti til hægri eða vinstri að kosningum loknum, ef marka má nýja könnun Maskínu. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri. 15. maí 2026 11:42
Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Landsmenn munu ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa til sveitarstjórna víðsvegar um landið. Kjörstaðir verða opnaðir um allt land í fyrramálið, flestir klukkan níu og verður þeim í flestum tilfellum lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi kosningarnar og framkvæmd þeirra. 15. maí 2026 07:03