Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2026 16:01 Jon Rahm missti aðeins stjórn en var fljótur að sjá að sér. Getty/Michael Reaves Jon Rahm hefur beðist afsökunar á því að hafa í bræði sinni slegið torfi í sjálfboðaliða á PGA-meistaramótinu.
Rahm átti slakt högg á sjöundu braut Aronimink-golfvellinum á fyrsta hring mótsins í gær og brást hinn reiðasti við. „Annað skotið mitt flaug og fór alltof langt. Þetta var ekki á góðum stað og vegna gremju reyndi ég að sveifla í loftið, rétt yfir grasið, en var ekki að horfa. Ég sló upp torfi sem fór því miður beint í sjálfboðaliða,“ segir Rahm. Rahm bað viðkomandi strax afsökunar sem fékk torf í bæði andlit og öxl. „Mér gæti ekki liðið verr. Það er ástæðan fyrir því að ég baðst afsökunar. Ég þarf að hafa upp á viðkomandi og gefa honum gjöf vegna þess að þetta er óafsakanlegt og eitthvað sem átti ekki að gerast. Hvort sem það er viljandi eða ekki, þá er þetta ekki gott,“ segir Rahm. Rahm fór fyrsta hring mótsins á pari og á eftir að hefja leik á öðrum hringnum í dag. Mótið stendur yfir og er í beinni á Sýn Sport Viaplay alla helgina.
PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira