Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 23:45 Ludvig Åberg hrökk svo sannarlega í gang á síðustu sjö holunum í dag og fékk fjóra fugla. Getty/Andrew Redington Hinn 26 ára gamli Svíi Ludvig Åberg var sjóðheitur á seinni níu holunum í dag og stimplaði sig inn í toppbaráttuna á PGA-meistaramótinu í golfi. Norður-Írinn Rory McIlroy kom sér sömuleiðis í gang eftir skelfilegan fyrsta hring en það eru tveir Bandaríkjamenn sem leiða.
Alex Smalley og Maverick McNealy eru efstir eftir fyrstu tvo hringina, á -4 höggum, fjarri niðurskurðarlínunni en þeir sem léku hringina tvo á samtals +5 höggum eða verr eru hins vegar nú úr leik. Þá tilfinningu þekkir Åberg vel eftir að hafa fallið snemma úr leik á mótinu bæði í fyrra og hitteðfyrra. Hann var samtals á +2 höggum þegar hann átti sjö holur eftir í dag en fékk þá þrjá fugla í röð og alls fjóra fugla, og endaði hringinn því á -4 höggum. Åberg er því í hópi sjö kylfinga sem eru jafnir í 9. sæti á -2 höggum, eða tveimur höggum á eftir efstu mönnum. Í þeim hópi eru einnig til að mynda Scottie Scheffler, sem vann mótið af öryggi í fyrra, Cameron Young og Justin Thomas. Sjö höggum betri hringur hjá McIlroy Chris Gotterup átti þó besta hringinn í dag en hann lék á -5 höggum og er samtals á -3, jafn fjórum í þriðja sæti. Í þeim hópi er einnig Þjóðverjinn Stephan Jaeger sem afrekaði það að fá par á öllum átján holunum í dag. McIlroy er einnig með í baráttunni en þó á samtals +1 höggi, þrátt fyrir góðan hring í dag, því hann lék á +4 höggum á fyrsta hring í gær. Hring sem McIlroy hafði einfaldlega sagt drullulélegan (e. „shit“). Á meðal þeirra sem lentu undir niðurskurðarhnífnum var Bryson DeChambeau sem lék holurnar 36 á +7 höggum og var því nokkuð frá því að komast áfram. Hann féll einnig út snemma á The Masters. Stöðuna á PGA-meistaramótinu má sjá með því að smella hér. Keppni heldur áfram næstu tvo daga og eru beinar útsendingar á Sýn Sport Viaplay sem hefjast klukkan 17 hvorn dag.
Golf PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira