Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2026 23:23 Alex Smalley leiðir með tveimur höggum fyrir fjórða og síðasta hringinn á PGA-meistaramótinu. getty/Carl Recine Alex Smalley, 29 ára Bandaríkjamaður, er með tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á PGA-meistaramótinu í golfi.
Smalley er ekki sá þekktasti í bransanum og hefur aldrei unnið mót á PGA-mótaröðinni á sínum ferli. Hann er tíundi kylfingurinn frá 1995 sem er með forystu eftir þrjá hringi á risamóti þrátt fyrir að hafa aldrei unnið PGA-mót á ferlinum. Sá eini sem hélt út og vann risamót var Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen sem vann Opna breska meistaramótið 2010. John Daly er sá síðasti sem vann PGA-meistaramótið (1991) án þess að vera með sigur á PGA-móti á ferilskránni. PGA-meistaramótið er eina risamótið sem Smalley hefur keppt á. Hann lenti í 23. sæti 2023, komst ekki í gegnum niðurskurðinn 2024 og endaði í 28. sæti í fyrra. Smalley lék þriðja hringinn í dag á tveimur höggum undir pari. Á hæla hans koma fimm kylfingar sem eru allir á samtals fjórum höggum undir pari: Nick Taylor, Matthias Schmid, Aaron Rai, Jon Rahm og Ludvig Åberg. Kanadamaðurinn Taylor og Þjóðverjinn Schmid léku þriðja hringinn á fimm höggum undir pari. Rory McIlroy, sem vann Masters í síðasta mánuði, lék á fjórum höggum undir pari í dag og er á samtals þremur höggum undir pari. Sömu sögu er að segja af Xander Schauffele, Patrick Reed og Maverick McNealy. Bein útsending frá lokadegi PGA-meistaramótsins hefst klukkan 12:00 á morgun.
Golf PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira