Pétur hræddur um framtíð Borgarlínunnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. maí 2026 02:05 Pétur brást við fyrstu tölum í borgarstjórnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld. Vísir/Vilhelm Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar segir að flokkurinn muni veita nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg gott aðhald. Hann óttast að nýr meirihluti setji stopp á Borgarlínu. Flokkurinn mælist með fimm menn í borginni í fyrstu tölum í borginni.
Oddvitarnir brugðust við fyrstu tölum í Ráðhúsi Reykjavíkur í sameiginlegri útsendingu Sýnar og RÚV. Pétur, sem er fyrrverandi knattspyrnumaður, sagðist vera baráttumaður og stefnt væri á sjö borgarfulltrúa. Hann virkaði svekktur með niðurstöðuna sem þó er á pari við nýjustu kannanir. Pétur segir mikið hafa gengið á í flokknum. Hann útskýrði ekki sérstaklega hvað hann átti við með því en hann lagði Heiðu Björgu Hilmarsdóttur borgarstjóra í oddvitabaráttu í upphafi árs en hún vermir annað sæti á lista flokksins. Hann sagði greinilega íhaldssveiflu í borginni og úti um allt land en Sjálfstæðisflokkurinn væri víða að styrkja stöðu sína og Miðflokkurinn að láta til sín taka. Pétur var spurður að því hvort fráfarandi meirihluti hefði mögulega klikkað á því að axla ábyrgð á mistökum á kjörtímabilinu. Hann sagði það vel geta verið en svo væri hitt að mun meira væri talað um það sem illa væri gert í Reykjavík en það sem vel væri gert. Hann vonaðist þó til að flokkurinn myndi bæta fylgi sitt og að nóttin væri ung. Aðspurður sér hann ekki mikla möguleika á meirihlutamyndun til vinstri. Hugmyndafræði jafnaðarmennskunnar sem Samfylkingin lagði upp með hafi ekki virkað núna en flokkurinn haldi ótrauður áfram. Pétur segist óttast að sett verði stopp á Borgarlínu strax með nýjum meirihluta. Hann óttast hægri u-beygju í borginni. Samfylkingin geti vonandi jafnað það út, veitt mikið aðhald og fulltrúar hennar verði skemmtilegir í borgarstjórn.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Borgarlína Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira