Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Valur Páll Eiríksson skrifar 17. maí 2026 22:50 Rai hafði sannarlega ástæðu til að gleðjast í kvöld. David Cannon/Getty Images Bretinn Aaron Rai fagnaði sigri á PGA-meistaramótinu í golfi á Aronimink-vellinum í Pennsylvaníu í kvöld.
Alex Smalley var efstu fyrir hring dagsins, en hann líkt og Rai, er lítt þekktur. Smalley hafði aldrei unnið atvinnumannamót fyrir lokahringinn í dag. Smalley var með tveggja högga forystu, á sex undir pari, tveimur á undan næstu mönnum. Á eftir honum komu Nick Taylor, Matthias Schmid, Aaron Rai, Jon Rahm og Ludvig Åberg. Aaron Rai eagles the 9th to move to 5-under, just one shot off the lead. 🦅👀#PGAChamp pic.twitter.com/N1QtcqDLn2— PGA Championship (@PGAChampionship) May 17, 2026 Flestra augu voru á Rahm og Åberg, sem eru þekktustu nöfnin á þeim lista, og taldir líklegastir til að sækja að Smalley. Smalley missti forystuna eftir sex holur þegar hann fékk skramba á sjöttu braut, eftir að hafa farið aðrar á pari. Hann fékk þá einnig skolla á þeirri áttundu en fugl á níundu. Spilamennska Rai var upp og niður en hann tók fljótt fram úr hinum. Hann hafði fengið tvo fugla og þrjá skolla á fyrstu átta en fékk þá örn á þeirri níundu. Hann fylgdi því eftir með fuglum á elleftu, þrettándu og sextándu braut. UNBELIEVABLE FROM AARON RAI. 🤯He drains a 70-footer at the 17th to move to 9-under and open up a three-shot lead with one hole to play.#PGAChamp pic.twitter.com/9CLcqoVXJ7— PGA Championship (@PGAChampionship) May 17, 2026 Sjálfstraustið jókst eftir því sem á leið. Hreint ótrúlegt pútt hans, sem taldi um 21 metra, fyrir fugli á sautjándu braut tryggði honum þá sigurinn, en þá var hann kominn á níu undir par. Alls var hann sex undir pari á síðustu tíu holum dagsins og sannarlega verðskuldaður sigurvegari. Hringur dagsins var hans besti á risamóti á ferlinum, upp á 65 högg, og má með sanni segja að Rai hafi toppað á réttum tíma. Rai vann mótið á níu höggum undir pari, þremur höggum á undan Alex Smalley og Jon Rahm sem urðu jafnir í öðru sæti á sex höggum undir pari vallar. Justin Thomas lék, ásamt Rai, manna best í dag, á fimm undir pari og stökk upp um 28 sæti í það þriðja á fimm undir í heildina. Svíinn Ludvig Åberg og Þjóðverjinn Matti Schmid höfnuðu í þriðja sætinu ásamt Thomas. Það voru því fjórir Evrópubúar á meðal sex efstu. Rai er fyrsti Englendingurinn til að fagna sigri á PGA-meistaramótinu frá árinu 1919, þegar Jim Barnes vann annan af sínum tveimur titlum. Hver er Aaron Rai? Aaron Rai er ekki beint nafn sem margir þekkja, enda þessi 31 árs Englendingur aðeins unnið eitt PGA-mót á öllum sínum ferli. Hann er þó í 44. sæti á heimslista kylfinga, í nánd við kylfinga á við Rickie Fowler, Jason Day, Shane Lowry og Adam Scott. Hann hefur unnið þrjú mót á Áskorendamótaröðinni og þrjú á Evrópumótaröðinni. Hann er þá að meðal fárra atvinnukylfinga heimsins sem leikur með tvo golfhanska. View this post on Instagram A post shared by Golf on CBS (@golfoncbs) Það gerir Rai, sem ólst upp í Wolverhampton á Englandi, þar sem hann spilaði mikið golf á veturna með föður sínum í kuldanum í miðlöndum Englands. Hann vandi sig snemma á tvo hanska vegna kuldans og sá stíll hefur viðhaldist fram á fertugsaldur. Rai ásamt konu sinni Mauriku Gishnoy, eftir að ljóst var að titillinn væri í höfn.Darren Carroll/PGA of America via Getty Images Rai hafði fyrir mót helgarinnar best náð 19. sæti á risamóti á ferli sínum. Því náði hann á Opna breska árið 2021, á U.S. Open 2024 og á PGA-meistaramótinu á síðasta ári. Rai hafði aðeins unnið eitt mót á PGA-mótaröðinni á sínum ferli, á Wyndham-mótinu 2024, fyrir sigur kvöldsins og tvöfaldar hann því sigra sína á mótaröðinni með titlinum.
PGA-meistaramótið Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira