Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Kjartan Kjartansson skrifar 19. maí 2026 07:03 Baldur Héðinsson, stærðfræðingur, segir skoðanakannanir í undanförnum tvennum kosningum hafa farið sögulega nærri úrslitum. Aðeins rúmu prósentustigi skeikaði að meðaltali á skoðanakönnunum og úrslitum í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Stærðfræðingur segir kannanirnar hafa verið sögulega nákvæmar í ár.
Kosningaúrslitin í Reykjavík voru að mestu leyti í samræmi við þær skoðanakannanir sem gerðar voru í aðdragandanum. Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn kosningasigur en hann hafði mælst á uppleið í könnunum á sama tíma og Samfylkingin dalaði töluvert. Kannanir höfðu einnig sýnt að mjótt væri á munum á milli Vinstrisins, Viðreisnar og Miðflokksins sem kepptust um að ná þremur mönnum inn í borgarstjórn. Miðflokkurinn hreppti hnossið á endanum. Meðalfrávik í könnunum síðustu vikuna fyrir kosningar nam 1,22 prósentustigum samkvæmt greiningu Baldurs Héðinssonar stærðfræðings sem vann kosningaspá fyrir Vísi í aðdraganda kosninganna. Frávikið nam 1,06 stigum hjá Maskínu en 1,39 hjá Gallup. Skekkjan hjá báðum könnunarfyrirtækjunum fór í sömu átt fyrir alla flokka nema einn. Bæði vanmátu Sjálfstæðisflokkinn og bæði ofmátu Samfylkinguna. Maskína ofmat hins vegar Viðreisn á meðan Gallup vanmat fylgið. Aðeins tvö könnunarfyrirtæki stóðu fyrir könnunum á fylgi flokkanna í borginni í ár, Maskína og Gallup. Fyrirtækin hafa verið fleiri fyrir kosningar á undanförnum árum og segir Baldur að þá hafi verið meiri gæðamunur á könnunum en nú. Meðalfrávikið viku fyrir kosningar árið 2022 var 1,74 prósentustig. „Þetta eru bæði almennt mjög góðir könnunaraðilar og það sést alveg í frávikinu, bæði núna og í síðustu alþingiskosningum, að kannanir eru sögulega nærri úrslitum sem sýnir gæði þessara aðila,“ segir Baldur. Gaf hugmynd um hvað gæti gerst við frávik Kosningaspá Baldurs, sem byggist á niðurstöðum skoðanakannana og gefur frambjóðendum svo líkur á kjöri eftir hemun á hundrað þúsund sýndarkosningum, fór að sama skapi einnig nærri úrslitunum í borginni. „Það sem hermanirnar gefa okkur er að geta ekki bara horft á hvað kannanir gefa upp sem stöðuna heldur innsýn í hvað getur gerst þegar það er frávik frá þeirri mynd og hversu líklegar mismunandi myndir eru,“ segir Baldur. Meðalfrávikið á milli lokamats kosningaspárinnar annars vegar og atkvæðahlutfalls flokkanna nam 1,09 prósentustigum. Stærstu frávikin í kosningaspánni voru þriðju menn Viðreisnar og Vinstrisins sem lokaútgáfa hennar gaf 53 prósent líkur hvorum að komast inn. Hér fyrir neðan má sjá líkur hvers og eins frambjóðanda samkvæmt lokaútgáfu kosningaspár Baldurs og Vísis fyrir kjördag. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá 16. maí Í staðinn náði níundi maður Sjálfstæðisflokks kjöri með 36 prósent líkur og þriðji maður Miðflokks með 42 prósent líkur í kosningaspánni. Aðeins fimmtungslíkur voru á því að Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur næðu saman þeim tólf borgarfulltrúum sem þarf til þess að mynda meirihluta. Baldur segir þetta gott dæmi um þessa innsýn inn í mögulegar sviðsmyndir sem hermanirnar í kosningaspánni veiti. „Ástæðan fyrir því að þeir fengu ekki hærri líkur á að komast inn er einmitt að þeir voru ekki öruggir að komast inn,“ segir Baldur um líkurnar sem þriðju menn Viðreisnar og Vinstrisins höfðu í spánni fyrir kjördag. Að sama skapi hafi þriðji maður Miðflokks verið inni í 42 prósentum hermana í kosningaspánni þótt hann mældist með minnstar líkur flokkanna þriggja. „Maður má ekki hunsa það. Það segir manni að það þarf lítið að breytast til að hann sé inni. Það er svo það sem endaði á að gerast.“ Þóra Ásgeirsdóttir hjá Maskínu ræddi niðurstöður kannana í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun.
Skoðanakannanir Borgarstjórn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosningaspá Vísis Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Sjá meira