Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. maí 2026 12:22 Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. vísir/vilhelm Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fundar með oddvitum þeirra þriggja flokka sem kemur til greina að mynda meirihluta með í borginni í dag eftir að hafa legið undir feldi í gær.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fundar með Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, og Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar. Fundurinn fer fram í hádeginu þar sem matur verður á borðstólnum. „Ég ætla nú að bjóða þeim upp á hádegisverð. Ég held við höfum öll gott af því að snæða svolítið. Maður á það til að gleyma að borða í kosningabaráttu. Við þurfum örugglega öll aðeins að vinna upp fæðuna,“ segir Hildur í samtali við fréttastofu. Tveir kostir teljast líklegastir, tveggja flokka meirihluti með Miðflokki eða meirihluti með Viðreisn og Framsókn. Jafnvel kemur til greina að mynda þrettán manna meirihluta með Miðflokki og Framsókn. Björg útilokaði samstarf með Miðflokknum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. „Það hefur verið bjart yfir Reykjavík frá því úrslit kosninganna lágu fyrir og það viðrar vel í dag fyrir góða fundi. Ég mun í hádeginu hitta oddvita þeirra flokka sem ég hef lýst yfir að ég sé reiðubúin í samstarf við og það verður bara spennandi að sjá hvað kemur út úr þeim fundi,“ segir Hildur. Stefnt er að því að Hildur fundi með fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í borginni í kjölfar fundar með oddvitunum þremur. Samkvæmt heimildum hefur Hildur áður fundað óformlega með borgarfulltrúum sínum sem veittu henni fullt umboð til að semja um meirihluta. „Ég ætla að ræða hvar málefnagrundvöllur okkar liggur. Það eru margir sameiginlegir fletir hjá þessum flokkum en við þurfum að finna núningspunktana líka. Ég hugsa að engar stórar ákvarðanir verði teknar í dag en ég vona að samtalið gangi vel,“ segir Hildur. Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins, sagði í Reykjavík síðdegis í gær að Sjálfstæðismenn væru hræddir við „vókið“ og litlir í sér. Það væri það eina sem myndi koma í veg fyrir tveggja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins að hans mati. Innt eftir viðbrögðum við þessu segir Hildur: „Það sér það nú hver maður að við Sjálfstæðismenn erum ekki litlir í okkur og allra síst eftir niðurstöðu þessara kosninga. Ég held að hann Björn Ingi, vinur minn, ætti bara að gæta orða sinna vegna þess að svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf.“ Veistu hvar oddvitarnir ætla að snæða saman hádegismat? Sendu okkur fréttaskot hér.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Viðreisn Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Borgarstjórn Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira