Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir, Jakob Tryggvason, Andri Reyr Haraldsson, Eiður Stefánsson, Gunnar Sigurðsson og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifa 20. maí 2026 13:45 Á sama tíma og Seðlabankinn hækkar stýrivexti vegna þrálátrar verðbólgu berast tölurnar úr ársfjórðungsuppgjöri bankanna. Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna og Kviku er tæpir 30 milljarðar króna. Hagnaðurinn hefur aukist um þriðjung milli ára og hreinar vaxtatekjur um 29%. Þessar fyrirsagnir eru svo gott sem hættar að vekja furðu. Í febrúar sl. var greint frá samanlögðum hagnaði bankanna á árinu 2025 sem nam næstum því 100 milljörðum, eða um 320 þúsund krónum á hvern fullorðinn Íslending. Ári fyrr birtist frétt um 88 milljarða hagnað árið 2024. Auðvitað græða bankarnir þegar vextir eru uppi í skýjunum. Allan þennan hagnaðartíma hafa verið í gildi kjarasamningar sem kváðu á um lágar launahækkanir, gegn því að fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og hið opinbera aftur af gjaldskrárhækkunum. Með því stóðu vonir til að verðbólga gengi niður og stýrivextir um leið. Verðbólgan var byrjuð að lækka áður en samningar voru undirritaðir og lækkunin hélt áfram um tíma, en hægar gekk að ná stýrivöxtum niður. Allan þennan tíma hefur íslenskt launafólk búið við einhverja hæstu raunstýrivexti (stýrivextir að frádreginni verðbólgu) sem um getur í samanburðarlöndum. Hávaxtastefnan hefur leitt til samdráttar, hækkandi húsnæðiskostnaðar og atvinnuleysis. Ójöfnuður hefur aukist á milli kynslóða og háu vextirnir hafa dregið þrótt úr efnahagslífinu. Áhrifin eru alvarlegust í húsnæðismálum þar sem háir stýrivextir standa húnsæðisuppbyggingu fyrir þrifum og halda húsnæðisverði og húsaleigu uppi, með tilheyrandi verðbólguáhrifum bæði í dag og í framtíðinni. Samt er verðbólgan þrálát. Hagnaðardrifin verðbólga Það eru nefnilega fleiri að græða en bankarnir. Stóru fyrirtækin sem stýra að miklu leyti verðlagningu í landinu hafa átt mjög góð ár. Matvörurisarnir eru að auka framlegð sína, bæði í magni og hlutfalli. Það þýðir að þeir fá meira fyrir hverja selda vöru. Á sama tíma er rekstrarhagræðingu ekki skilað í vöruverð. Nýleg greining Seðlabankans sýndi svart á hvítu að sveiflur á gengi íslensku krónunnar skila sér nánast eingöngu í hækkun matvöru, sjaldan í lækkun. Samt er eðli sveiflna að fara bæði upp og niður. Þetta þýðir að við borgum meira fyrir matvöru og nauðsynjar og það ratar beint inn í verðbólguna. Verðbólgan er nefnilega að hluta til hagnaðardrifin. Vissulega eru fyrirtæki á Íslandi sem hækka verð af því að þau geta ekki annað og það eru dæmi um verðhækkanir sem má rekja beint til aukins kostnaðar. En það eru líka stór og mikilvæg fyrirtæki sem hækka verð af því að þau geta það. Þetta er sérlega viðkvæmt á tímum þar sem launafólk undirgekkst lágar launahækkanir til langs tíma. Nú er svo komið að forsendur kjarasamninga eru líklegar til að bresta í haust. Seðlabankinn spáir því að verðbólga verði 5,5% undir lok árs. Eina tækið sem við í forsvari stéttarfélaga höfum til að ná fram leiðréttingu á kjörum okkar fólks er að krefjast almennra launahækkana. Við höfum þegar beðið okkar félagsfólk að sætta sig við lágar launahækkanir í rúm tvö ár í von um að fyrirtæki og stjórnvöld standi við sitt. En reyndin hefur verið önnur. Hækkanir kjarasamningsbundinna launa hafa verið vel undir verðbólgu og raunstýrivextirnir vinna gegn auknum kaupmætti. Hver á að láta kyrrt liggja? Í ljósi efnahagsástandsins er þrýstingur á verkalýðshreyfinguna að láta kyrrt liggja og krefjast ekki launahækkana ef forsendur bresta. En hvers vegna á launafólk að sætta sig við verðbólgu, atvinnuleysi og ofurvexti ef fyrirtæki auka hagnað sinn á sama tíma? Eru það ef til vill fyrirtækin sem ættu að láta kyrrt liggja? Við, sem erum í forsvari fyrir félög sem telja í kringum 40% af almennum vinnumarkaði, höfum kallað eftir því að fyrirtækin í landinu axli sína ábyrgð á stöðunni. Við förum fram á að þau skuldbindi sig til að láta af hagnaðarsókninni ef kjarasamningar eiga að halda í haust. Um leið krefjum við stjórnvöld um að standa við sitt, draga til baka yfirgengilegar gjaldskrárhækkanir og frysta gjaldskrár. Þetta, ásamt raunverlegum aðgerðum í húsnæðismálum, getur dregið úr verðbólgu og skapað aðstæður til að mæta utanaðkomandi áhrifum vegna olíukreppunnar í sameiningu. Stærstur hluti verðbólgunnar er heimatilbúinn vandi – við sættum okkur ekki við áframhaldandi verðbólgu og svimandi stýrivexti. Við krefjumst aðgerða! Halla Gunnarsdóttir, formaður VR Jakob Tryggvason, formaður RSÍ Andri Reyr Haraldsson, varaformaður RSÍ og formaður FÍR Eiður Stefánsson, formaður LÍV Gunnar Sigurðsson, formaður VM Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Gunnarsdóttir Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira