Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. maí 2026 16:25 Fanney Dóra Veigarsdóttir vill minna fólk á að huga að eldvörnum eftir eldsvoðann. Mikil mildi er að ekki hafi farið enn verr þegar eldsvoði kom upp í eldhúsinu í íbúð þeirra Fanneyjar Dóru Veigarsdóttur og Arons Ólafssonar í Grafarvogi á miðvikudag í síðustu viku. Aron slapp með 2. stigs bruna á höndum eftir að hafa slökkt í eldinum en íbúðin er mikið skemmd vegna sóts. Þau vilja fyrst og fremst minna á mikilvægi eldvarna eftir ömurlega lífsreynslu. „
Við erum nýflutt, nýbúin að kaupa þessa íbúð en á gamla staðnum vorum við alltaf með læst helluborð, þú gast ekki kveikt á henni nema með því að aflæsa því,“ segir Fanney í samtali við Vísi. Þau komust að því við illan leik að sama öryggið er ekki til staðar á helluborði í nýju íbúðinni. „Þetta er algjör steik en kettirnir okkar labba á helluborðinu og kveikja í pappapoka sem er á hellunum. Þetta var algjört klúður og ótrúlegt að enginn hafi verið heima akkúrat þarna á þessum tíma, þetta var um hálf sex leytið og ætli það hafi ekki verið eldur í sirka tíu, fimmtán mínútur.“ Fanney Dóra tók myndband í íbúðinni eftir eldsvoðann sem sýnir eyðilegginguna. Dreif sig heim Fanney útskýrir að Aron hafi þarna verið nýfarinn út úr húsi, á leið í apótek þegar eldsvoðinn kom upp. Hann hafi fengið hringingu frá Securitas um að reykskynjari hafi farið í gang. „Hann hugsar náttúrulega strax að þetta sé bara falsboð en þá segja þeir honum að þetta séu sex reykskynjarar sem eru í gangi og þá drífur hann sig til baka, hann var ekki kominn langt,“ útskýrir Fanney. Aron hafi hlaupið inn og fengið slökkvitæki að láni frá nágranna. Þá hafi bálið verið ansi stórt og slasaðist Aron við slökkvistörfin. „Hann hefði líklega aldrei átt að fara inn, en adrenalínið kikkaði bara inn, og hann hleypur bara inn, fær slökkvitæki hjá nágranna og ræðst í þetta. Hann er með 2. stigs bruna á hendinni og er bara að jafna sig eftir þetta.“ Sót út um allt Fanney segir þau Aron fyrst og fremst þakklát að ekki hafið farið verr. Ljóst sé að mikið tjón hafi orðið á íbúðinni og segir Fanney þau nú kanna stöðu mála hjá sínu tryggingafélagi. Þau búa núna hjá foreldrum Arons og segir Fanney ljóst að það muni taka tíma að taka til hendinni í íbúðinni. „Það þarf að taka allt í gegn í eldhúsinu og ég held að fólk átti sig ekki á því hvað sót kemst langt, það þarf til dæmis að taka hurðakarmar úr í öllu húsinu og lyktin er hræðileg. Þetta er svona eins og þegar það kviknar í einu hári, nema þannig sinnum milljón.“ Fanney segist fyrst og fremst vilja hvetja alla til þess að huga að eldvörnum á heimilum sínum. Þau hafi verið með slökkvitæki og eldvarnarteppi í gömlu íbúðinni en verið svo nýflutt í hina nýju að þau hafi ekki verið farin að huga að því að græja eldvarnir. „Mér finnst svo mikilvægt að nýta þetta tækifæri til að minna á þetta, af því að fólk er oft ekkert að spá í þessu og maður veit að það eru alveg margir sem eru ekki með slökkvitæki heima. Það var bara algjör heppni í okkar tilviki að vinkona okkar var heima fyrir ofan okkur og að Aron gat fengið slökkvitæki hjá henni.“ Fanney hefur greint frá atvikinu á samfélagsmiðlum, meðal annars á TikTok. @fanneydora This is your sign að eiga reykjskynjara sem virkar því guði se lof fyrir okkar ♬ original sound - Fanneydora
Reykjavík Kettir Gæludýr Dýr Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira