Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. maí 2026 13:11 Nýsköpunarverðlaun Norðurlanda eru veitt árlega. Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan.
Hvert Norðurlandanna tilnefnir eitt nýsköpunarfyrirtæki til verðlaunanna. Að verðlaununum standa hugverkastofur Norðurlandanna og er dómnefnd skipuð forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi. Hið íslenska Hefring Marine hefur þróað snjallsiglingakerfið IMAS® (Intelligent Marine Assistance System) sem nýtir gervigreind og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að birta leiðsögn í rauntíma, um þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur. Kerfið er notað um allan heim, þar á meðal í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum og á Ítalíu. Markmið verðlaunanna er að hvetja áfram og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafa framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn. Þá vekja verðlaunin athygli á framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags. Önnur fyrirtæki sem tilnefnd eru til verðlaunanna eru: Lybe Scientific frá Noregi Lybe Scientific hefur þróað nýstárlega aðferð til að einangra DNA og RNA úr lífsýnum á fljótlegan hátt. Tæknin byggir á segulmögnuðum örkúlum og er notuð í læknisfræðilegri greiningu, lyfjaþróun, fiskeldi og margskonar lífvísindum. Sonus Fishery frá Danmörku Sonus Fishery hefur þróað aðferð til að nýta hljóðbylgjur til að beina ákveðnum fiskitegundum inn í botntroll og þannig opnað nýjar leiðir til skilvirkra veiða með minni áhrifum á hafsbotninn og lífríki sjávar. Weeefiner frá Finnlandi Weeefiner sérhæfir sig í endurvinnslu málma úr iðnaðaraffalli. Scavenger®-tæknin sameinar skilvirkni í nýtingu auðlinda og umhverfisvernd. Hún hefur verið prófuð víða um heim við endurvinnslu á meira en 15 mismunandi málmum og hentar mörgum geirum, þar á meðal námuiðnaði, málmiðnaði, efnaiðnaði og orkugeiranum. Grale frá Svíþjóð Grale hefur þróað valkost við umbúðaplast úr endurnýjanlegu hráefni, svo sem úrgangi frá landbúnaði og skógrækt. Tæknin er einkaleyfisvernduð og ekki þarf að breyta tækjabúnaði til að nýta hana, sem gerir lausnina skalanlega og hagkvæma.
Nýsköpun Efnahagsmál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira