Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar 25. maí 2026 15:00 Fyrir nokkrum árum síðan heimsótti ég saltnámu í Austurríki, gekk marga kílómetra inn í fjall og hef síðan þá verið heilluð af því hvernig tímaskeiðin varðveitast sem berglög. Því dýpra sem við fórum, því lengra ferðuðumst við aftur í tíma. Á mesta dýpinu varð jarðsagan einnig að nálægri menningarsögu, þegar leiðsögumaðurinn útskýrði hvaða tilgangi náman þjónaði í seinni heimsstyrjöldinni. Þá voru þúsundir málverka og skúlptúra falin þar inni; menningararfurinn var ferjaður ofan í jörðina til þess að vernda hann fyrir því sem á gekk ofanjarðar. Þegar samfélög standa frammi fyrir óvissu og átökum eru það ekki bara landamæri og náttúruauðlindir sem þarf að verja, heldur líka listaverkin okkar, sem muna hver við erum, þrátt fyrir allt. Samband Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) var stofnað árið 1982. Fjölmörg smærri félög sameinuðust þar undir einum hatti og mynduðu sterkan vettvang, sem í krafti fjöldans stóð betur vörð um réttindi myndlistarmanna, faglega, lagalega og félagslega. Síðan þá hefur myndlistarsenan á Íslandi þróast og stækkað og þverfaglegt alþjóðlegt samstarf aukist verulega. Þrátt fyrir smæð markaðarins og krefjandi starfsskilyrði hefur sjálfstæða senan hérlendis mikinn drifkraft og ríkuleg tengsl við umheiminn. Í þessum veruleika er hlutverk SÍM mjög augljóst, því þó svo að skapandi hugsun sé fólki eðlislæg, jafnvel í harðbýli, þá eiga menning og listir skilið að fá að dafna í uppbyggilegu og frjóu umhverfi; samfélagi sem styður og skilur þau gildi sem listirnar standa vörð um. Þar gegnir SÍM lykilhlutverki, sem hagsmunasamtök og rödd sem beitir sér. Á undanförnum árum hafa ótal rannsóknir verið gerðar sem sýna ótvírætt fram á efnahagslegan ávinning af rekstri skapandi greina. En hvernig mælist huglægt gildi lista? Hvert er virði hughrifa, breytts tilfinningalífs, nýrra taugaboða, samkenndar, gagnrýnnar hugsunar eða gráskala í hugmyndafræði? Hvernig vegum við og metum framlag listafólks? Niðurstöður af slíku mati raðast illa í excel og því er nauðsynlegt að hugsa út frá öðru viðmiði en aðeins því efnahagslega. Listir varðveita mennskuna í allri sinni vídd. Þær verja gildi sem byggir á upplifun, túlkun og sameiginlegri reynslu frekar en mælanlegum hagnaði. Þar sem ég stóð inní miðju fjalli í ölpunum varð mér ljóst að menning okkar varðveitist þökk sé virðingu fyrir listum. Þar sem ég gekk úr einum helli í annan upplifði ég gríðarlegt þakklæti til fólksins sem gróf námurnar og til þeirra sem földu þar menningarlega sjálfsvirðingu sína og varðveittu hið ómetanlega í formi þúsunda málverka og skúlptúra. Listamenn allra tíma hafa lifað við margvíslegar hindranir til að geta skrásett tilvistina í formi listaverka. Þeir vinna krefjandi starf sem er menningarlega mikilvægt en jafnframt illa launað. Það liggur á að þróa hér orðræðuhefð sem tekur mið af því menningarlega auðmagni sem listir skapa, óháð fjárhagslegum gróða mældum í núvirði. SÍM gegnir þar því mikilvægu hlutverki, að efla skilning á gildi myndlistar og því þyngdarlausa gulli sem hún færir samfélaginu öllu. Í stjórnarsetu minni í Sambandi íslenskra myndlistarmanna síðastliðin tvö ár hef ég öðlast góða þekkingu á starfsemi sambandsins og hef skýra sýn á það sem ég vil vinna að næstu árin. Í framboði mínu til formanns legg ég áherslu á tímabæra endurskoðun á rekstrarforminu og aukið gagnsæi gagnvart félagsmönnum. Ég vil stuðla að bættu starfsumhverfi myndlistarmanna, áframhaldandi uppbyggingu vinnustofa og auknum stuðningi við starfsaðstöðu félagsmanna. Ég vil standa vörð um réttindi gagnvart ríki og sveitarfélögum, og stuðla að góðum og uppbyggilegum samskiptum SÍM við sína félagsmenn með virkri hlustun og ábyrgu umboði formanns. Nú stöndum við á tímum hraðra samfélagsumbreytinga. Sundrungar gætir í heimspólitík og margslungin ógn steðjar að tjáningarfrelsinu. Þá skiptir höfuðmáli að standa vörð um gagnrýna hugsun og listrænt frelsi. SÍM á að hafa skýra og sameinandi rödd sem ver ekki aðeins starfsgrundvöll myndlistarmanna, heldur einnig þá menningarlegu arfleifð og framtíðarsýn sem listirnar skapa. Höfundur er í framboði til formanns Sambands Íslenskra Myndlistarmanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Myndlist Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar