Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar 26. maí 2026 10:00 Á þriðjudaginn heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð. Ástæðan er einföld: gigt hefur ekki aðeins áhrif á þann sem greinist heldur alla fjölskylduna. Gigtarsjúkdómar og sjálfsofnæmissjúkdómar geta komið fram á öllum aldri, hjá börnum, ungmennum og fullorðnum og þegar einn einstaklingur innan fjölskyldunnar fær greiningu tekur fjölskyldulífið oft breytingum. Of margir tengja enn gigt við háan aldur og slitna liði. Raunin er þó sú að gigt getur haft áhrif á fólk á öllum aldri. Alvarlegir sjálfsofnæmissjúkdómar leggjast oft þyngst á konur á barneignaraldri, á þeim tíma lífsins þegar fólk er að ala upp börn, byggja upp starfsferil og sinna fjölskyldulífi. Greining kemur því oft þegar verkefnin eru mörg og ábyrgðin mikil. En sjúkdómurinn stöðvar ekki daglegt líf. Það þarf enn að sinna börnum, mæta til vinnu, halda heimili gangandi og takast á við öll þau verkefni sem fylgja fjölskyldulífi. Þegar einstaklingur greinist með gigt breytist lífið því sjaldnast eingöngu fyrir þann sem veikist. Sjúkdómurinn hefur áhrif á allt fjölskyldukerfið. Foreldri sem glímir við verki eða mikla þreytu getur átt erfiðara með að sinna daglegum verkefnum. Barn sem greinist með gigt stendur frammi fyrir áskorunum sem jafnaldrar þess þurfa ekki að takast á við. Maki, systkini og aðrir fjölskyldumeðlimir aðlagast nýjum veruleika þar sem hlutverk og ábyrgð geta breyst og allir þurfa mögulega að færa fórnir. Þær geta falist í því að fjölskyldur geta þurft að hætta við eða breyta skipulögðum ferðum, afmælum eða félagslegum viðburðum þegar veikindi versna skyndilega eða sá veiki á slæma daga. Það getur orðið erfiðara að leyfa börnum að stunda tómstundaiðju annaðhvort vegna kostnaðar eða vegna þess að veika foreldrið hefur ekki kraft til að keyra eða vera viðstatt íþróttaæfingar eða íþróttaleiki, og börn þurfa að sætta sig við að foreldrið getur ekki tekið þátt í leikjum eða útivist eins og það myndi gera ef heilsan væri góð. Heilbrigða foreldrið þarf að taka meiri ábyrgð á heimilinu og hlutverk þess breytist jafnvel í hlutverk umönnunaraðila. Ófyrirsjáanleikinn getur verið einna erfiðastur. Sumir dagar eru góðir en aðrir erfiðari og fjölskyldur þurfa ekki aðeins að takast á við líkamleg áhrif sjúkdómsins heldur einnig andlegar, félagslegar og fjárhagslegar afleiðingar. Sem betur fer hafa orðið miklar framfarir í greiningu og meðferð gigtarsjúkdóma. Hér á Íslandi höfum við öflugt heilbrigðisstarfsfólk og góða möguleika á árangursríkri meðferð. Þegar fólk fær rétta meðferð minnkar oft byrði sjúkdómanna verulega og líðan getur batnað til muna. Meðferð getur skipt sköpum, ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur alla fjölskylduna. Fjölskylduhátíð Gigtarfélagsins er því haldin af ástæðu. Hún er haldin til að vekja athygli á því að gigt hefur áhrif á fólk á öllum aldri og að áhrif hennar ná langt út fyrir þann sem fær greininguna. Hún er áminning um að á bak við hverja greiningu er fjölskylda sem aðlagast, styður og tekst á við breytingar saman. Þegar einn einstaklingur fær gigt verður það sjaldnast verkefni eins einstaklings. Það verður verkefni allrar fjölskyldunnar og þess vegna skiptir skilningur samfélagsins máli. Höfundur er framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar