Mikil spenna í veðurkortunum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. maí 2026 16:07 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur. Vísir/Einar Mikill munur er á hitastigi norðan við landið og sunnan þess og er mikil spenna í veðurkortum vegna þessa, sérstaklega á norðanverðu landinu þar sem snjóað gæti til fjalla síðar í vikunni. Veðurfræðingur segir ekki víst enn hvort verði ofan á, kalda loftið eða hið heita og því sé mikil óvissa í kortunum. Hann hvetur bændur fyrir norðan til að fylgjast vel með veðurspám en slíkur hitabratti leysi yfirleitt alltaf eitthvað úr læðingi.
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem rætt var við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing. Hann segir ekki hreinar línur í veðurspánni um það hvernig veðrið verði. Núverandi spá geri ráð fyrir því að það muni kólna nokkuð. „Að það snúist til norðaustanáttar á fimmtudaginn og það haldi svona svalt og kalt veður að minnsta kosti fram á laugardag, í þrjá til fjóra sólarhringa og þá með slyddu og snjókomu norðaustan- og austanlands einkum, ofan þetta hundrað til 300 metra hæðar, eitthvað svoleiðis. Ekki í byggð. Það er fimm stiga hiti og rigning í byggð, 4-5 stiga hiti og rigning í byggð. En engu að síður er þetta hret og þetta er kalt eins og þetta lítur út núna.“ Ögurstund á fimmtudag „Og eins og ég segi það kemur til með að snjóa á Fjarðarheiðinni, það snjóar á Möðrudalsöræfunum og þessum fjallvegum en fyrir sauðfjárbændur snýst þetta meira um fé heima við hús og hvort það þurfi að setja það inn og hvort það verði það kalt. Það er líka alveg möguleiki á því að það verði lítið úr þessu.“ Málið sé að það sé gríðarlega mikill hitastigull yfir landinu, þá sérstaklega á morgun. Það þýði að það lúri kalt loft skammt norðan fyrir landið. Síðan sé hlýja loftið fyrir sunnan landið sem landsmenn hafi frétt af í Evrópu þar sem hitamet hafa fallið víða. „Þarna á milli er mikill hitabratti og þessi hitabratti leysir yfirleitt alltaf eitthvað úr læðingi. Það gerist eitthvað, þetta er ekki stöðugt ástand. En spálíkönin eru ekkert alveg á því að þetta sé eitthvað svona hreint og beint. Ögurstundin rennur upp á fimmtudag, í háloftunum. Það eru alveg líkur á því líka að hlýja loftið ofan á, með suðaustanátt og kalda loftið, það nái ekki til lands. Á því eru metnar kannsi 33 prósent líkur eins og staðan er núna.“ Þannig skýrist þetta endanlega á fimmtudaginn? „Það gæti skýrst eitthvað á morgun eða svona þegar nær dregur. Við verðum alltaf að taka tillit til þess að við lesum einhverja spá, hún segir eitthvað, hún er byggð á einhverjum líkum. Oft eru líkurnar bara mjög góðar, 80 til 90 prósent. En nú er og hefur verið skýrt tekið fram að það er meiri óvissa en oft áður. Það er bara vegna þess að staðan er svo spennt, boginn er svo spenntur og örinni verður hleypt af og það er ekkert víst að hún verði norðan við miðið eða sunnan við miðið, svo maður noti svona lélegt líkingarmál.“ Maður hafði áhyggjur af bændunum aðallega, en það er kannski ekki ástæða til? „Jú, það er alveg ástæða til þess að hafa áhyggjur og menn þurfa að fylgjast með, vegna þess að það er mjög kalt loft fyrir norðan landið og það þarf mjög lítið til þess að það steypist hér yfir landið.“ Fimm gráðurnar sem spáð er fyrir norðan gætu alveg orðið ein eða tvær? „Það er versta sviðsmyndin. Hún er ekki líkleg, það er líklegast að það kólni dálítið og að það verði svalt loft og að það snjói til fjalla, þetta verði svona hret af minni kvarðanum, ekki eins mikið og hretið sem var hér í byrjun júní fyrir tveimur árum sem margir muna eftir, en samt sem áður ákveðið bakslag. En það eru svona um það bil þriðjungslíkur á því að þetta bakslag sýni sig ekki og að kalda loftið haldi sig fyrir norðan vegna þess að það hlýja fyrir sunnan okkur haldi kalda loftinu í skefjum.“
Veður Bítið Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira