„Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. maí 2026 22:51 Páll Kristjánsson býr við Álafoss og hefur áhyggjur af hvaða áhrif framkvæmdir í Skammadal hafa haft á lífríki Varmár. Vísir/Bjarni Íbúi við Álafoss í Mosfellsbæ segir fólk á svæðinu reitt vegna áhrifa sem borframkvæmdir í Skammadal hafa haft á lífríki Varmár. Veitur stöðvuðu í dag framkvæmdirnar á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum og ætla að kalla til óháða sérfræðinga til að meta áhrifin.
Við borunarframkvæmdirnar í Skammadal er borað eftir heitu vatni fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Bora á sjö holur og í tilkynningu Veitna þann 6. maí er greint frá losun vatns í Varmá sem beri með sér sand og svarf. Mótvægisaðgerðir vegna losnunarinnar hafa hins vegar ekki haft tilætluð áhrif. Varmáin rennur í gegnum Álafosskvosina og síðan framkvæmdir hófust hafa áhrifin verið umtalsverð, bæði á lífríki og ásýnd árinnar. „Ekki séð neitt líf í ánni síðan þetta byrjaði“ Íbúi sem búið hefur við Álafoss í tuttugu og sjö ár þekkir ána vel og segir áhrifin á lífríki árinnar umtalsvert. „Fyrir helgi þá sá ég þrjá andarunga dauða og kolluna elta þá niður ána. Svo hef ég ekki séð neitt líf í ánni síðan þetta byrjaði,“ segir hnífasmiðurinn Páll Kristjánsson sem býr alveg við Álafossinn í Varmá. Miklar litabreytingar hafa sést á ánni sem venjulega er tær. Á mánudag var áin dökkbrún og í kjölfarið útbjuggu Veitur nýja og stærri svarfþró sem er ætlað að taka á móti úrgangi. Eins og sjá má hafa orðið umtalsverðar litabreytingar á ánni síðustu daga.Vísir/Bjarni/Páll Kristjánsson Í dag mátti sjá hvíta slikju á ánni og Páll hefur áhyggjur, vanalega geti hann til dæmis séð hornsíli og litla silunga. „Áin var tær í nokkra klukkutíma og þá labbaði ég hérna niður og var að leita á þeim stöðum þar sem ég sé venjulega líf. Því ég er að fylgjast með þessu, ég hef gaman af þessu og fylgist með. Það var allt horfið,“ segir Páll. Framkvæmdirnar í Skammadal eru umfangsmiklar en í dag sendu veitur frá sér tilkynningu um að þær yrðu stöðvaðar til að lífríkið fengi að njóta vafans. Þá verða óháðir sérfræðingar fengnir til að meta áhrif framkvæmdanna á Varmá. Páll segir svæðið skipta íbúa máli, börn sem oft séu þar að leik sjáist ekki núna og vont sé að horfa upp á hvaða áhrif framkvæmdirnar hafa haft. „Ég varð bara reiður, endalaust reiður. Þetta er svo mikil svívirðing við þessa á, þetta svæði hérna hjá okkur er friðað. Þetta á ekki og má ekki gerast.“
Mosfellsbær Umhverfismál Tengdar fréttir Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. 27. maí 2026 06:30 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. 27. maí 2026 06:30