Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Lovísa Arnardóttir skrifar 28. maí 2026 07:44 Veitur bora eftir heitu vatni við Varmá. Boraðar verða fjórar holur í leitinni. Veitur eru aðeins byrjuð á þeirri fyrstu en vinna að því að gera úrbætur svo að efni sem komi upp með bornum fari ekki í Varmá. Vísir/Bjarni Umhverfis- og orkustofnun, UOS, lítur það mjög alvarlegum augum að set frá jarðborun Veitna í Skammadal hafi borist í Varmá. Stofnunin telur að Veitur hefðu mátt koma í veg fyrir þetta með betri og faglegri undirbúningi áður en framkvæmdin hófst en segir Veitur hafa fylgt öllum leiðbeiningum um úrbætur. UOS sinnir eftirliti vegna borana Veitna við Varmá.
Veitur stöðvuðu í gær borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið væri að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fengi að njóta vafans. Í tilkynningu frá þeim kom fram að óháðir sérfræðingar yrðu fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa. Samkvæmt svörum frá UOS hefur stofnunin farið tvisvar sinnum í eftirlit og er í stöðugu sambandi við Veitur um úrbætur. Veitur hafi fylgt öllum leiðbeiningum um úrbætur „Jarðborinn, allt sem tilheyrir rekstri hans og allar tilheyrandi mengunarvarnir, þ.m.t. setþró, eru starfsleyfisskyld. Veitur hafa farið að þeim kröfum um úrbætur sem stofnunin hefur farið fram á,“ segir í svari UOS um starfsleyfi Veitna og hvernig því hefur verið fylgt. Set rennur í ána úr borholunni. Um er að ræða fínan sand, náttúrulegt efni, sem hefur ekki náð að setjast í setþró áður en það rennur út. Veitur vinna nú að umbótum svo að sandurinn renni ekki út í ána. Vísir/Bjarni Í svari til fréttastofu um eftirlit stofnunarinnar kemur fram að íbúar hafi haft samband við UOS til að lýsa yfir áhyggjum af framkvæmdinni, lit árinnar og áhrifum hennar á lífríki hennar. Rætt var við einn í kvöldfréttum Sýnar sem sagðist afar reiður. Ekki talin þörf á umhverfismati Í svari UOS til fréttastofu kemur einnig fram að framkvæmdin sætti málsmeðferð samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana og var ekki talin þurfa að fara í fullt umhverfismat og því hafi áhrif á fuglalíf og annað lífríki ekki verið metin en þó, til dæmis, hvatt til þess í umsögn Náttúrufræðistofnunar að framkvæmdin yrði utan varptíma. Þar er einnig tekið fram að þó svo að friðuð svæði séu í nálægð sé framkvæmdasvæði utan þess og að rask á gróðri verði staðbundið. Náttúruverndarstofnun sagði svo í sinni umsögn: „Í greinargerð segir að tímabundin hækkun hitastigs, gruggmyndun og efni í skolvatni geti borist í Varmá með óvissu um áhrif á lífríki. Náttúruverndarstofnun telur mikilvægt að þessum áhrifum sé veitt ítarlegt mat áður en leyfi til framkvæmda er veitt, og að fram fari nákvæm vöktun á áhrifum á lífríki og eðli Varmár.“ Stofnunin lagði svo til að það myndi fara fram vöktun á hitastigi, efnasamsetningu og gruggmagni í Varmá og lækjum sem skolvatn rynni til, bæði á framkvæmdatíma og eftir lok borana. Varmá var nokkuð brúnleit fyrr í vikunni. Andrés Skúlason „Sérstaklega þarf að fylgjast með áhrifum á líffræðilega gæðaþætti og búsvæði fiska,“ sagði í umsögninni en að þau teldu, eins og Náttúrufræðistofnun, að ekki væri þörf á umhverfismati. Hægt er að kynna sér umsagnir og greinargerð Veitna um framkvæmdina hér. „Öll mengandi starfsemi sem starfsleyfisskyld er hjá Umhverfis- og orkustofnun, þ.m.t. jarðborar, þarf að uppfylla skilyrði laga og reglugerða á sínu sviði og stofnuninni ber að hafa eftirlit með því. Stofnunin mun hafa eftirlit með þessum jarðbor sem og öðrum jarðborum og beita þeim úrræðum sem stofnunin hefur samkvæmt lögum til að koma á reglufylgni ef þess er þörf,“ segir að lokum í svari UOS til fréttastofu um málið.
Fuglar Orkumál Umhverfismál Mosfellsbær Jarðhiti Tengdar fréttir Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. 27. maí 2026 06:30 Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira
Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. 27. maí 2026 06:30