Körfubolti

Pétur Már tekur við Grinda­vík

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Pétur Már er reynslumikill þjálfari
Pétur Már er reynslumikill þjálfari Vísir / Hulda Margrét

Pétur Már Sigurðsson hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari kvennaliðs Grindavík í Bónus deildinni í körfubolta. Hann tekur við af Þorleifi Ólafssyni sem lét af störfum eftir síðasta tímabil.

Pétur átti farsælan leikmannaferil en hefur aðallega einbeitt sér að þjálfun síðan 2009. Á þeim tíma hefur hann meðan annars þjálfað hjá Fjölni, Stjörnunni, Vestra og nú síðast Skallagrími.

„Pétur Már er einn reynslumesti og virtasti þjálfari landsins. Á ferli sínum hefur hann komið að fjölmörgum verkefnum í íslenskum körfubolta, bæði sem þjálfari og leiðtogi, og er það mikill styrkur fyrir Grindavík að fá hann til liðs við félagið á þessum tímapunkti,” segir í tilkynningu Grindvíkinga.

Grindavík hefur komist í bikarúrslitin og úrslitakeppni deildarinnar síðustu tvö ár. Á nýafstöðu tímabili féll liðið út eftir oddaleik gegn Njarðvík í undanúrslitum.

Verið að strekkja seglin fyrir aðra atlögu að Íslandsmeistaratitlinum á næsta tímabili og nýlega framlengdi félagið samninga við fjóra lykilleikmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×