„Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Agnar Már Másson skrifar 28. maí 2026 19:37 „Þótt þetta lyf sé töfralyf við sníkjudýrasýkingum þýðir það ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum,“ segir Sigurbjörg. Bylgjan Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands segir engar rannsóknir sýna fram á það að ormalyfið Ivermectin gagnist við krabbameinsmeðferð hjá fólki. Lyfið sé ekki bannað á Íslandi, og öllu síður vegna þess að „Big pharma“ vilji græða á fólki.
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, var til tals í Reykjavík síðdegis í dag til þess að ræða um Ivermectin en í gær hafði Jón Ármann Steinsson lofað lyfið í sama þætti og haldið því fram að lyfið hefði bjargað sér er hann greindist með fjórða stigs krabbamein. Ivermectin er fyrst og fremst lyf við sníkjudýrasýkingum og rósroða og Sigurbjörg Sæunn segir að uppfinningamenn ormalyfsins hafi á sínum tíma fengið Nóbelsverðlaun. „Þótt þetta lyf sé töfralyf við sníkjudýrasýkingum þýðir það ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum.“ Hún segir að ástæðan fyrir því að þetta lyf sé ekki til á Íslandi sé fyrst og fremst vegna þess að Íslendingar þurfi sjaldan að glíma við sníkjudýrasýkingar. Reyndar sé lyfið þó aðgengilegt í kremformi. Hún sagði það ekki rétt sem Jón Ármann hélt fram að lyfið væri bannað, heldur væri það einfaldlega ekki notað gegn krabbameinum. „Og það tengist ekki því að „Big phrama“ [þ.e. lyfjaiðnaðurinn] sé að reyna að græða á fólki. Það tengist því að það eru ekki til rannsóknir sem sýna fram á það á fullnægjandi hátt að það nýtist við krabbameinum.“ Eins og sumir lesendur muna rataði lyfið í kastljósið fljótlega eftir að kórónuveiruheimsfaraldurinn hófst í byrjun árs 2020 þegar heimsbyggðin leitaði í örvæntingu að meðferð við Covid-19. Þá bárust fregnir af því að lyfið ivermectin dræpi veiruna í ræktunarskál á tilraunastofu. Þrátt fyrir að framhaldsrannsóknir leiddu ekki í ljós að ivermectin hefði nokkra virkni gegn Covid-19 hömpuðu efasemdamenn um faraldurinn og bóluefnin, sem komu síðar fram, lyfinu sem fyrirbyggjandi meðferð við veikinni. Fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins var á meðal þeirra sem mærðu lyfið sem vörn gegn Covid-19 hér á landi. „Það gerðist í Covid að fólk greip til örþrifaráða og það er svolítið það sem þetta snýst um. Við getum ekki hlustað á eitt tilfelli og ályktað að það sé svarið.“ Hún nefnir að sögusagnir hafi farið af stað í faraldrinum um að lyfið væri gott gegn Covid, „alveg eins og það fóru sögusagnir af stað um að það væri gott að drekka spirtt við Covid.“ Hún segist muna eftir því að hafa unnið í apóteki í faraldrinum að fólk hafi drukkið ivermectin-krem. „Það eru ekki til samanburðarrannsóknir sem sýna fram á að ivermectin gagnist við Covid. Það er sýnt fram á það í tilraunaglasi en þá get ég líka hellt blásýru yfir bakteríur og veirur og það getur haft veirudrepandi áhrif. Það þýðir ekki að það sé gott að drekka blásýru.“ Hún segir að rannsóknir um þetta vanti. Þá er hún spurð út í ummæli Jóns um að krabbameinslæknar í Bandaríkjunum séu farnir að skrifa upp á ivermectin og segir að hún geti ekkert fullyrt um hvort það sé satt eða ekki. „Það eina sem ég get sagt er að hér á Íslandi hafa læknar leyfi til þess að skrifa upp á lyf í svokölluðu „off-label use“ sem þýðir að – ef það er viðurkennd læknisaðferð, þótt ekki sé búið að setja það í fylgiseðilinn en nægilegar rannsóknir liggi fyrir [..], þá hafa læknar heimild til að skrifa upp á það.“ „Mér finnst dásamlegt að maðurinn sé læknaður af krabbameini og ég ber virðingu fyrir því. En ég er smá hrædd við þessi skilaboð sem koma úr ólíkum áttum, upplýsingaóreiðuna sem á sér stað. Við vitum það nú sjálf að fólk getur læsts inni í ákveðnum bergmálshellum þar sem þú færð bara upplýsingar sem þú vilt heyra en ekki úr ólíkum áttum.“ Því fagnar hún því að hún fái að svara því sem Jón hélt fram í viðtalinu. „Við viljum ekki að almenningur hugsi: Bíddu nú við; þarna er eitthvað töfralyf sem verið er að halda frá okkur út af einhvers konar „Big pharma“-samsæriskenningum.“ Eru slæmar aukaverkanir? „Það er eins og með öll önnur lyf; það er ekkert lyf fullkomið. Það er talið frekar öruggt. Hvað slæmar aukaverkanir varðar þá vitum við til dæmis ekki hvað viðkomandi er að taka annað. Heilt yfir þegar verið er að skoða lyfjameðferð er skoðuð áhætta versus ávinningur.“ En í stuttu máli eru engar rannsóknir sem styðja það að þetta sé krabbameinslyf. „Ég fann ekki rannsóknir í fólki sem sýna fram á gagnsemi Ivermectins við krabbameini,“ svarar hún. „Ég hafði aldrei heyrt um þetta fyrr en ég hlustaði á þetta viðtal. En við sníkjudýrasýkingum og við rósroða er þetta mjög gagnlegt.“
Lyf Krabbamein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík síðdegis Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira