Kjölur selur allan hlut sinn í Reitum fyrir nærri fjóra milljarða
Fjárfestingafélagið Kjölur, einn stærsti einkafjárfestirinn í Reitum, hefur losað um allan eignarhlut sinn fyrir um 3,9 milljarða króna en salan kemur í kjölfar þess að annar af eigendum félagsins dró framboð sitt til stjórnar til baka vegna óánægju með að fá ekki stuðning til formennsku.
Tengdar fréttir
HS Orka jók hlutafé um 5,6 milljarða til að kaupa virkjanir af tveimur fjárfestum
Hlutafé HS Orku var aukið um 5,6 milljarða króna til að fjármagna kaup á tveimur vatnsaflsvirkjunum í Seyðisfirði en viðskiptin voru „að stærstum hluta“ fjármögnuð með eiginfjárframlagi frá hluthöfum orkuframleiðandans. Seljandi var Kjölur fjárfestingarfélag, sem er í eigu tveggja manna, en það seldi hlut sinn í GreenQloud fyrir um tvo milljarða króna árið 2017. Eigendur Kjalar stofnuðu skemmtistaðinn Sportkaffi rétt fyrir aldamót.