Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. maí 2026 13:38 Kúluhúsið hefur sett svip sinn á miðbæ Vestmanneyja síðustu 43 ár. Kúluhúsið fræga að Vesturvegi 18 í Vestmannaeyjum hefur verið sett á sölu. Húsnæðið er 238,9 fermetrar að stærð og er ásett verð 89,9 milljónir króna. Lengi vel var matvöruverslunin Vöruval í húsinu en árið 2021 var því breytt í gisti- og veitingahús.
Eftir að húnæðinu var breytt í gisti- og veitingahúsnæði var eigninni skipt í tvennt. Annars vegar eru þar gistirými með átján svefnhylkjum og tveimur baðherbergjum með salerni, vaski og sturtu. Hins vegar er veitingarými með stórum bar sem er gamli, fjólublái barinn sem var á Hótel Sögu, sætum og borðum fyrir um þrjátíu manns og þremur salernum og þar fyrir innan er fullbúið eldhús fyrir veitingarekstur. Tveir inngangar eru að húsnæðinu og bílastæði fyrir utan það. Barinn í húsinu var áður á Hótel sögu, þá þekktur sem fjólublái barinn. Stór veitingasalur er í aðalrými hússins. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis en þar kemur fram að eignin hafi verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár. Skipt var um gler í öllum gluggum, búið að bæta við opnanlegum gluggum í fimm glugga, auka hljóðeinangrun milli hæða og álklæða timbur að utan á suður- og austurhluð. Húsnæðið er með nýlegt loftræstikerfi, nýlega rafmagnstöflu, uppfærðar brunavarnir og gildandi rekstrarleyfi. Framtíðarlegir gistiklefar fylla annan hluta hússins. Átján gistiklefar eru í gistirýmishluta húsnæðisins. Ýmiss konar rekstur verið í húsinu Húsið var byggt árið 1983 og setti strax svip sinn á miðbæ Vestmannaeyja. Fyrst var þar rekin raftækjaverlun, því næst Matvöruval í tvö ár og svo stóð húsið autt í nokkur ár. Tísku- og raftækjaverslunin Adam og Eva var opnuð 1990 og sólbaðsstofa tekin í notkun á efri hæðinni, þar sem nú er íbúð. Matvöruverslunin Vöruval hóf rekstur í húsinu 1993. Hjónin Ingimar Heiðar Georgsson og Hjördís Inga Arnarsdóttir tóku við honum um aldamótin en hættu honum árið 2020 vegna erfiðrar samkeppni við bæði Krónuna og Bónus.
Fasteignamarkaður Vestmannaeyjar Verslun Hús og heimili Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira