Körfubolti

Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni

Andri Broddason skrifar
Jón Axel spilaði fjórtán mínútur í sigri San Pablo á botnliði Granada.
Jón Axel spilaði fjórtán mínútur í sigri San Pablo á botnliði Granada. vísir

Lið San Pablo rétt sigraði botnlið Granada í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Íslendingurinn Jón Axel Guðmundsson er í liði San Pablo.

San Pablo sat fyrir leikinn í fjórtánda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Það var staðfest fyrir leikinn að liðið væri hvorki að fara falla né ná að fara í úrslitakeppnina. Granada var nú þegar fallið.

Leikurinn var mjög kaflaskiptur og byrjaði Granada sterkt og var þrettán stigum yfir eftir fyrsta leikhluta. Næstu tvo leikhluta var San Pablo mun sterkari aðilinn en fjórði leikhluti var jafnari. Leikurinn endaði með aðeins fimm stiga mun, 110-105.

Jón Axel spilaði fjórtán mínútur í leiknum og skoraði tvö stig og náði tveimur fráköstum. Þetta var ekki hans besta spilamennska á tímabilinu.

Lokaumferð deildarinnar klárast í kvöld með sjö leikjum. Eftir hana er ljóst hvaða lið komast í úrslitakeppnina.

Landsliðsmennirnir Elvar Már Friðriksson og Tryggvi Snær Hlinason mætast í kvöld en þeir eru leikmenn La Laguna Tenerife og Bilbao Basket. Þeir geta báðir komist í úrslitakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×