Innherji

Grein­endur „hissa“ með niður­stöðuna hjá Ocu­lis en mæla enn með kaupum

Hörður Ægisson skrifar
Hlutabréfaverð Oculis hafði fram að þessum tíðindum fyrir helgi verið á mikilli siglingu undanfarna mánuði og var upp um meira en 40 prósent frá áramótum. Félagið var fyrst skráð á markað í Bandaríkjunum árið 2023.
Hlutabréfaverð Oculis hafði fram að þessum tíðindum fyrir helgi verið á mikilli siglingu undanfarna mánuði og var upp um meira en 40 prósent frá áramótum. Félagið var fyrst skráð á markað í Bandaríkjunum árið 2023.

Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.


Tengdar fréttir

Er­lendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Ocu­lis

Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×