Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar 2. júní 2026 09:30 Verðbólga, háir vextir og húsnæðisvandi hafa eðlilega skapað óánægju víða í íslensku samfélagi. Um það þarf vart að deila. Stundum virðist þessi umræða leiða að einni fyrirframgefinni niðurstöðu: að vandamál okkar samfélags liggi ekki aðeins í einstökum ákvörðunum eða hagstjórn, heldur í íslenska samfélagslíkaninu sjálfu. Í umræðu um Evrópusambandið birtist þetta sífellt oftar með þeim hætti að efnahagslegar og félagslegar áskoranir hér á landi eru settar fram sem sönnun þess að Ísland hafi einfaldlega dregist aftur úr öðrum Evrópuríkjum. Þetta er alrangt þegar litið er til alþjóðlegra mælikvarða á lífskjör, tekjudreifingu og félagslegt öryggi. Fá ríki í heiminum mælast jafn hátt og Ísland þegar kemur að lífsgæðum, heilsu, menntun og félagslegu öryggi. Samkvæmt HumanDevelopmentIndex Sameinuðu þjóðanna (HDI) situr Ísland í efsta sæti heimslistans. Af ríkjum Evrópusambandsins er Danmörk efst í 4. sæti, en Þýskaland hæst evruríkjanna í 5. sæti. Almenningur og stjórnmálin Í litlu samfélagi verða tengsl milli atvinnulífs, stjórnmála og fjölmiðla einfaldlega sýnilegri en víða annars staðar. Það er ekki sjálfgefið að stuttar boðleiðir milli almennings, atvinnulífs og stjórnmála séu vísbending um spillingu eða óheilbrigð tengsl. Þær geta líka skapað meira aðhald, meiri nálægð við ákvarðanatöku og aukið möguleika almennings til að hafa áhrif. Margir Íslendingar þekkja það af eigin raun að geta leitað beint til þingmanna eða ráðherra og fengið viðbrögðeða leiðbeiningar vegna sinna mála. Slík nálægð getur vissulega skapað áskoranir, en hún er ekki sjálfkrafa merki um óheilbrigt samfélag heldur getur líka verið styrkleiki í lýðræðislegu samfélagi þar sem almenningur hefur raunverulegan aðgang að stjórnmálamönnum. Gini-stuðullinn og tekjuójöfnuður Ein þekktasta alþjóðlega mælingin á tekjuójöfnuði er svokallaður Gini-stuðull. OECD, Alþjóðabankinn og Eurostat nota hann meðal annars við samanburð á tekjudreifingu milli ríkja. Ísland og önnur Norðurlönd hafa um langt árabil mælst meðal þeirra samfélaga heims þar sem tekjuójöfnuður er hvað minnstur. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands var Gini-stuðullinn hér á landi árið 202224,2 stig. Samkvæmt tölum frá Eurostat var Gini-stuðullinn í Noregi 27,5 sama ár. Hin Norðurlöndin þrjú voru þar á svipuðu róli og Noregur.Til samanburðar mældist stuðullinn talsvert hærri í ríkjum á borð við Þýskaland (29), Frakkland (29,8) og Ítalíu (32,7). Sum Austur-Evrópuríki, svo sem Tékkland (24,8) og Slóvenía (23,1), búa við tiltölulega jafna tekjudreifinguen eru engu að síður með mun lægri þjóðartekjur og kaupmátt á mann en Ísland. Á hinn bóginn glímatil dæmis Búlgaría (38,4),Lettland (36,2) og Litháen (34,3) við meiri ójöfnuð auk þess sem þjóðartekjur á íbúa eru verulega lægri en á Íslandi. Þetta sýnir glöggt að Evrópusambandið er ekki eitt samræmt félagslegt eða efnahagslegt módel. Lífskjör, félagslegt öryggi og tekjudreifing ráðast af fjölmörgum þáttum og aðild að sambandinu tryggir hvorki sjálfkrafa meiri jöfnuð né betri lífskjör. Séð í þessu ljósi verður dálítið sérstakt að lesa íslenska umræðu þar sem stundum er talað eins og Ísland standi utan allra viðmiða um félagslegt öryggi. Alþjóðlegar mælingar benda þvert á móti til þess að Ísland standi enn mjög sterkt þegar kemur að lífsgæðum, tekjudreifingu og félagslegu öryggi í samanburði við flest önnur ríki Evrópu. Vitanlega má lengi bæta margt í íslensku samfélagi. En stórar pólitískar ákvarðanir eins og aðild að Evrópusambandinu eiga að byggjast á yfirveguðum samanburði og raunsærri umræðu. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Erna Bjarnadóttir Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar