„Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Bjarki Sigurðsson skrifar 4. júní 2026 11:48 Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir það virðingarleysi við kjósendur að Vilhjálmur sé á sama tíma bæjarstjóri og þingmaður. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á rétt tæpum tíu milljónum í biðlaun eftir að hún sagði af sér þingmennsku. Hún segir óvíst um næstu skref hjá sér en að hún muni ekki taka við neinum greiðslum sem ekki fara eftir þeim reglum sem gilda um biðlaun. Stjórnsýslufræðingur segir Áslaugu á gráu svæði. Þá sýni Vilhjálmur Árnason kjósendum virðingarleysi með því að sitja á þingi og gegna stöðu bæjarstjóra á sama tíma.
Áslaug hafði setið á þingi í tíu ár þegar hún sagði af sér í gær. Síðasta tæpa ár hafði hún þó verið í námsleyfi og varamaður setið hennar í stað. Á meðan hún var í leyfi þáði hún þó 3,1 milljón í laun á meðan þingið var í sumarleyfi. Samkvæmt reglum taka allir þjóðkjörnir þingmenn sæti aftur á þingi yfir sumartímann á meðan þingið er í fríi. Það gildir um alla þingmenn, hvort sem þeir eru í fæðingarorlofi, veikindaleyfi eða námsleyfi að sögn Áslaugar. Reglur um biðlaun þingmanna kveða á um að alþingismaður sem hefur setið á Alþingi tvö kjörtímabil eða lengur eigi rétt á biðgreiðslum í sex mánuði. Áslaug uppfyllir það skilyrði og hefði gert það þó að hún hefði ekki tekið sæti á þingi í gær í skamman tíma áður en hún tilkynnti afsögn sína. Taki hún við starfi á næstu sex mánuðum falla biðlaun niður ef launin er starfinu fylgja eru jafnhá eða hærri, en ella skerðast biðlaunin sem laununum nemur. Námsleyfið á gráu svæði Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir engar sérstakar reglur um námsleyfi þingmanna. „Hún fer strangt til tekið ekki í námsleyfi frá Alþingi heldur tekur hún inn varamann og gefur þessa skýringu. Við skulum segja að það sé á gráu svæði að fara að sinna einhverju öðru þegar þú ert kjörinn fulltrúi,“ segir Haukur. Virðingarleysi við kjósendur Afsögn annars þingmanns Sjálfstæðisflokksins er yfirvofandi. Vilhjálmur Árnason er tekinn við sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar en hann kveðst ætla að gera upp ónefnd mál áður en hann segir af sér. Á meðan gegnir hann báðum störfum og þiggur laun fyrir bæði. „Röksemdin fyrir því að þingmenn eru með um það bil fimmtíu prósent hærri laun en meðallaun í landinu er sú að þingmenn geti sinnt þessu sem aðalvinnu og þurfi í engum tilvikum að vera með aukavinnu. Það er ansi mikið virðingarleysi við kjósendur að líta á bæjarstjórastarfið í Reykjanesbæ eða þingmannsstarfið sem einhvers konar aukavinnu,“ segir Haukur. Sjálfstæðismenn áberandi Þetta sé alls ekki fyrsta dæmið. Davíð Oddsson var á sama tíma forsætisráðherra og borgarstjóri í tvo mánuði. Þá hafa tveir núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Rósa Guðbjartsdóttir og Bryndís Haraldsdóttir, verið bæði sveitarstjórnarfulltrúar og þingmenn á sama tíma. Rósa í Hafnarfirði og Bryndís í Mosfellsbæ. „Þetta hefur loðað svolítið við Sjálfstæðisflokkinn. Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu,“ segir Haukur.
Stjórnsýsla Sveitarstjórnarmál Reykjanesbær Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Erlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Innlent „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Innlent „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Innlent Fleiri fréttir „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ „Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Lögsækja Reykjavíkurborg Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Ánægja með Höllu eykst Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Tveir handteknir vegna líkamsárásar og fleiri í tengslum við rán og þjófnað „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Sjá meira