Handbolti

Silfurdrengurinn Ingi­mundur þjálfar Aftur­eldingu á­samt Hrannari

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hrannar Guðmundsson og Ingimundur Ingimundarson munu þjálfa Aftureldingu.
Hrannar Guðmundsson og Ingimundur Ingimundarson munu þjálfa Aftureldingu. afturelding

Ingimundur Ingimundarson og Hrannar Guðmundsson eru nýir þjálfarar karlaliðs Aftureldingar í handbolta.

Afturelding tilkynnir um ráðningu á samfélagsmiðlum félagsins. Stefán Árnason þjálfaði liðið á síðasta tímabili en hann entist aðeins í eitt ár eftir að hafa tekið við af Gunnari Magnússyni.

Hrannar Guðmundsson hefur stýrt karlaliði Stjörnunnar síðustu þrjú tímabil en er uppalinn hjá Aftureldingu og snýr nú heim í Mosfellsbæinn.

Ingimundur Ingimundarson var hluti af landsliði Íslands sem vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2008. Hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Val undanfarin ár.

Tilkynning Aftureldingar:

Það gleður okkur að tilkynna að Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur ráðið þá Hrannar Guðmundsson og Ingimund Ingimundarson sem þjálfara meistaraflokks karla í handbolta.

Hrannar er Mosfellingum að góðu kunnur. Hann er uppalinn hjá Aftureldingu, lék með öllum yngri flokkum félagsins og steig sín fyrstu skref í þjálfun í Mosfellsbæ. Undanfarin ár hefur Hrannar byggt upp öflugan þjálfaraferil. Hann hefur starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu og ÍR, auk þess að hafa verið aðalþjálfari meistaraflokks karla og kvenna hjá Stjörnunni. Þá er Hrannar hluti af þjálfarateymi A-landsliðs karla.

Ingimundur Ingimundarson kemur inn í þjálfarateymið með Hrannari og færir félaginu mikla reynslu og þekkingu. Hann var lykilmaður í einu sigursælasta landsliði Íslands frá upphafi, vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2008 og bronsverðlaun á Evrópumótinu 2010, auk þess að leika 123 A-landsleiki fyrir Ísland.

Sem leikmaður átti Ingimundur afar farsælan feril bæði hér heima og erlendis og lék meðal annars sem atvinnumaður í Sviss, Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Hann var hluti af þjálfarateymi Akureyrar á árunum 2016–2018 og hefur síðan þá sinnt þjálfun yngri flokka með góðum árangri, síðast hjá Val.

Við erum afar stolt af því að fá Hrannar og Ingimund til liðs við okkur. Hrannar þekkir félagið, menninguna og umhverfið í Mosfellsbæ út og inn, á meðan reynsla og þekking Ingimundar mun nýtast félaginu afar vel, ekki síst í áframhaldandi þróun ungra og efnilegra leikmanna Aftureldingar.

Saman mynda þeir metnaðarfullt og öflugt þjálfarateymi sem mun leiða meistaraflokk karla inn í spennandi framtíð og áframhaldandi uppbyggingu á meðal fremstu liða landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×