Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Lovísa Arnardóttir skrifar 5. júní 2026 08:13 Flugvirkjar hafa sent bréf á stærstu eigendur Icelandair um málið. Vísir/Anton Brink Flugvirkjafélag Íslands, FVFÍ, hefur skorað á forsvarsmenn Icelandair að hverfa frá þeim áformum sínum að flytja sérfræði- og tæknistörf úr landi í bréfi til félagsins. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að um verðmæt störf sé að ræða og fólk sem búi yfir mikilli þekkingu á flota félagsins. „
Það má vel rökstyðja mikilvægi þess að hafa góða aðgreiningu á milli flota Icelandair og véla í verkefnum fyrir aðra flugrekendur. En það eru hæg heimatökin að koma þeirri aðgreiningu á hér heima hafi menn vilja til þess,“ segir í yfirlýsingu á vef félagsins sem birt var í gær. Þar kemur einnig fram að FVFÍ leggi áherslu á að félagið líti þetta mál alvarlegum augum. „Hér er ekki aðeins um að ræða innri skipulagsbreytingu heldur stefnumarkandi ákvörðun um hvar tæknileg þekking, ábyrgð og störf innan Icelandair-samstæðunnar eigi að vera til framtíðar,“ segir í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingu FVFÍ kemur einnig fram að félagið hafi sent bréf til framkvæmdastjóra og stjórnarformanna þeirra níu lífeyrissjóða sem eiga hlut í Icelandair Group og að það kalli eftir því að sjóðirnir kynni sér áætlanir Icelandair um flutning sérhæfðra tæknistarfa, þekkingar og framtíðarverkefna úr landi. Flugmenn Icelandair í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) eiga í kjaraviðræðum við félagið. Fjölmiðlabann hefur verið sett á deiluna og því hefur lítið heyrst af gangi viðræðna en það virtist komin hreyfing í kjaraviðræðurnar Icelandair og að sögn ríkissáttasemjara. Icelandair kynnti í gærkvöldi heildstæðari nálgun á kjaramál flugmanna sem fulltrúar þeirra hafa nú til skoðunar. Fundi samningsaðila lauk um klukkan 21:35 í Karphúsinu og hafði staðið yfir frá 19:00.
Flug Icelandair Kjaramál Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira