Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Andri Broddason skrifar 8. júní 2026 07:32 Litlu mátti muna að þjálfari enska landsliðsins hafi tekið við Guðjóni Þórðarsyni hjá Stoke. EPA/NEIL HALL Litlu mátti muna að landsliðsþjálfari Englands, Thomas Tuchel, hefði verið ráðinn þjálfari Stoke á Englandi og hefði þá tekið við af Guðjóni Þórðarsyni sem þjálfari. Ásgeir Sigurvinsson var þá í stjórn Stoke og Íslendingar áttu stóran hlut í Stoke-liðinu á þessum tíma.
Árið 2001 þurfti Thomas Tuchel að hætta sem leikmaður aðeins 27 ára vegna meiðsla í hné. Eftir meiðslin byrjaði Tuchel að þjálfa og starfaði hjá sínu gamla félagi, Stuttgart, sem þjálfari yngri liða. Ásgeir Sigurvinsson var leikmaður Stuttgart á sínum leikmannaferli þannig að hann þekkti vel til félagsins. Hann starfaði sem stjórnarmaður Stoke og var búinn að frétta af Tuchel sem væri efnilegur þjálfari. Árið 1999 var íslenskt fjárfestingarfyrirtæki sem keypti stóran hluta í Stoke-liðinu og Guðjón Þórðarson var ráðinn þjálfari. Lið Stoke stóð í þriðju deild Englands og var markmiðið að komast upp í hærri deildir. Stoke-liðið komst í umspil um að komast upp í aðra deild á Englandi en tapaði gegn Gillingham á dramatískan hátt. Árið eftir komst félagið aftur í umspil til að fara upp um deild en tapaði þá á móti Walsall. Stjórn félagsins var ekki sátt við Guðjón eftir fyrsta tapið í umspilinu og staðan batnaði ekki eftir tap ári síðar. Gunnar Gíslason sat í stjórn Stoke og var staðráðinn í að láta Guðjón fara en hann ætlaði að berjast fyrir starfi sínu. Gunnar og Ásgeir vissu af þjálfaraefninu Tuchel og reyndu að fá hann til liðs við Stoke en það gekk ekki. Guðjón hélt þá starfi sínu eitt tímabil í viðbót. Á þriðja tímabili Guðjóns sem stjóri Stoke náði hann loks að koma liðinu upp um deild en var þrátt fyrir það rekinn sem stjóri nokkrum dögum síðar. Samband Guðjóns við stjórn liðsins var ekki á góðum nótum og Gunnar lýsti því hve erfitt var fyrir stjórnina að vinna með Guðjóni. Þrátt fyrir að hafa reynt að fá Tuchel árinu áður heppnaðist það ekki og réð þáverandi stjóri Stuttgart, Ralf Ragnick, þjálfarann unga til að þróa leikmenn fyrir sig. Hann hélt því starfi þangað til hann var aðalþjálfari varaliðs Augsburg. Því mátti litlu muna að íslenska stjórn Stoke myndi fá Tuchel sem þjálfara í staðinn fyrir Guðjón Þórðarson en það gekk ekki upp.
Enski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? Sjá meira