Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson skrifar 8. júní 2026 10:02 Í gegnum tíðina eða öllu heldur aldirnar hefur fólkið sem byggt hefur Grindavík þurft að berjast við náttúruöflin og þá sérstaklega hafið. Hvort sem það hefur verið við sjósókn eða verjast ágangi sjávarins. Varnargarðar hafa verið reistir til að verja hafnarmannvirki, verjast landbroti og því að sjór gangi ekki á land í verstu veðrunum með tilheyrandi eyðileggingu. Í fullkomnum heimi hefði maður haldið að barátta sem þessi væri alveg nóg fyrir bæjarfélag eins og Grindavík, jú eða bara hvaða bæjarfélag sem er því eins og stendur í kvæðinu er sjómennskan ekkert grín. Því miður er þessi heimur ekki fullkominn og almættið bætti á okkur Grindvíkinga öðru verkefni að berjast við. Í Grindavík eru varnargarðar við sjávarsíðuna til varnar hvítfextum brimsköflunum sem æða vilja á land og svo varnargarðarnir inn til landsins til varnar biksvörtum hraunsköflunum sem ryðjast vilja til sjávar. Á þessum varnargörðum sést vel hversu hugvitið nýtist vel til varnar vánni. Svona fyrir þá sem ekki vita það þá stendur ennþá bjartur og lífvænlegur bær þarna innan garða sem er þess virði að berjast fyrir og hætturnar eru allar utan garða. Stærsta og versta hættan sem vofir yfir bænum núna er vissulega utan varnargarðanna en er ekki frá náttúrunnar hendi. Þessi hætta er ósýnileg og þrífst í skjóli skuggafyrirtækis ríkisstjórnarinnar Þórkötlu. Það er sárt að horfa núna upp á að mesta ógnin við okkar blómlega bæ er ekki lengur frá náttúrunnar hendi heldur yfirvöldum sem nú gera í því að leggja steina í götu okkar hvort heldur er með aðgerðum og eða aðgerðaleysi. Það er ljóst að við Grindvíkingar erum orðnir vel sjóaðir í því að taka því sem náttúran hendir í fangið á okkur. Nú þegar uppbygging Grindavíkur er komin á fullt hefði maður haldið að allir myndu ganga í takt í sömu átt. Nei, svo er aldeilis ekki! Það er erfitt að berjast við náttúruöflin en alls ekki ómögulegt eins og sést best á þessum frábæru varnar mannvirkjum sem garðarnir eru. Öllu verra er að þurfa á sama tíma að berjast við yfirvöld sem eru ófyrirsjáanlegri í sínum aðgerðum en sjálf Móðir Náttúra. Væri þetta hnefaleikabardagi væri búið fyrir löngu að dæma ríkið úr leik fyrir ítrekuð högg neðan beltis. Það er ekki í boði fyrir okkur að leggjast í gólfið og lúffa fyrir ákvarðanafælni, ofríki og óttastjórnun yfirvalda. Það er bara upp upp og áfram Grindavík! Höfundur er Grindvíkingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira