Innlent

Sérsveitaraðgerð á Eski­firði

Samúel Karl Ólason skrifar
Sérsveitar- og lögreglumenn að störfum á Eskifirði.
Sérsveitar- og lögreglumenn að störfum á Eskifirði.

Sérsveitarmenn voru að störfum á Eskifirði í dag. Götu í bænum var lokað í dag og sáust sérsveitarmenn fara inn í hús þar. Þá var Lögreglan á Austurlandi einnig með dróna á lofti yfir bænum um tíma.

Ekki liggur fyrir um hvað aðgerð lögreglunnar snerist. Frá Ríkislögreglustjóra fengust þær upplýsingar að Lögreglan á Austurlandi hefði beðið um aðstoð sérsveitarinnar.

Yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Austurlandi segir að mögulega verði send út tilkynning um aðgerðina á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×