Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar 9. júní 2026 10:15 Nú styttist væntanlega mjög í að Alþingi samþykki samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 auk frumvarps til laga um nýtt innviðafélag sem annist gerð vega og annarra samgöngumannvirkja og innheimti gjald fyrir notkun þeirra. Eðlilegt hefði mátt telja að í þingskjölum, umsögnum og umræðum varðandi þessa mikilvægu málsefni hefði verið vikið að mögulegri gerð nýrra vega svonefnda Húnavallaleið í Húnabyggð og Vindheimaleið í Skagafirði, samtals 30 km, sem styttu leið milli t.d. Reykjavíkur og Akureyrar um allt að 20 km og það þó ekki sé gert ráð fyrir þeim í aðalskipulagi eða fyrirliggjandi drögum að nýju aðalskipulagi sveitarfélaganna. Af einhverjum ástæðum kom þó ekki til þess. Það var aðeins í umsögn Samgöngufélagsins til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um samgönguáætlun, sem dagsett var 13. febrúar sl., að fjallað var beint um þessa kosti að því er best verður séð. Sjá umsögn í hlekk hér að neðan. Þótt tillögur um að gert yrði ráð fyrir gerð þessara vega hafi ekki fengið hljómgrunn við meðferð samgönguáætlunar á Alþingi að þessu sinni má það ekki verða til að hugmyndir um gerð þeirra verði enn og aftur lagðar til hliðar, svo ábatasöm sem gerð þeirra virðast vera. Afstaða til vegstyttingar Raunar er ekki að sjá að miklar umræður hafi átt sér stað um mögulega gerð vega þessar leiðir síðustu misseri og að margir telji hreinlega um einhvern ómöguleika að ræða, sem vissulega er ekki raunin þótt hvergi sé enn gert ráð fyrir þeim í aðalskipulagi eða öðrum opinberum gögnum. Þó er það svo að í netkönnun Samgöngufélagsins á viðhorfi til gerðar vega þessar leiðir sem lokið var úrvinnslu á nú í byrjun júní og stóð frá lokum febrúar sl. fram til um 20. maí sl. og var opin öllum með rafræn skilríki og alls 752 skráðu sig til þátttöku í, voru 79% þeirra sem svöruðu spurningunni „almennt séð“ mjög eða frekar hlynntir gerð vegar um Húnavallaleið en 18% mjög eða frekar andvígir. Svipaðar niðurstöður fengust fyrir Vindheimaleið en „almennt séð“ voru 75% voru mjög hlynntir gerð hennar en 17% mjög eða frekar andvígir. Meðal annarra spurninga sem bornar voru upp var um afstöðu til fjármögnunar veganna og voru 46% frekar eða mjög hlynnt því Húnavalleið yrði að mestu eða öllu leyti fjármögnuð með gjaldi af þeim ökutækjum sem um veginn færu en 33% frekar að mjög andvíg. Þá töldu töldu 60% frekar eða mjög líklegt að þeir ækju að jafnaði Húnavallaleið ef gjald fyrir að aka hana á fólksbíl væri kr. 600 kr. miðað við hæsta afslátt vegna fjölda ferða (50 ferðir eða meira) en kr. 1.200 kr. fyrir staka ferð, en 30% frekar eða mjög ólíklegt. Svipaðar niðurstöður fegnust varðandi Vindheimleið en þar var miðað kr. 500 kr. miðað við hæsta afslátt en kr. 1.000 fyrir staka ferð. Þá verður ekki annað ráðið en Vegagerðin telji gerð vega þessar leiðir um margt fýsilegan kost að því marki sem hún hefur tjáð sig, sá t.d. bréf hennar, dags. 18. febrúar sl., sem vísað er til í hlekk hér að neðan. Þá hafa nokkrir þingmenn, núverandi og fyrrverandi flutt tillögur um gerð eða undirbúning að gerð Húnavallaleiðar. Næstu skref Í ljósi þess eindregna vilja sem telja má að komi fram í þeirri könnun sem um ræðir og hins mikla mögulega heildarábata fyrir samfélagið er brýnt að frekari rannsóknir fari fram til að byggja á frekari aðgerðir og ákvarðanir og er þá einkum haft í huga að kanna sem best veglínur fyrir hina nýju vegi, gerð umhverfismats, mat á arðsemi, samfélagsáhrif og mögulegar mótvægisaðgerðir og annað sem fellur undir undirbúning að mögulegri gerð vega þessar leiðir og ákvörðun um hana. Nýlegt mat á umferðaröryggi hefur þegar verið unnið að tilstuðlan Samgöngufélagsins fyrir báðar leiðir og er það hinum nýju leiðum mjög í hag og núverandi leiðum í óhag. Hins vegar hafa nánast engar frekari rannsóknir farið fram á heppilegri legu vegar um svonefnda Vindheimaleið eða örðu sem gerð hennar tengdist. Af hálfu Samgöngufélagsins og áður Leiðar ehf., sem undirritaður veitir fyrirsvar, var margt af því sem að framan greinir skoðað á sínum tíma einkum það sem snéri að Húnavalleið en telja verður að forsendur um ýmis atriði hafa breyst umtalsvert auk þess sem mikilvægi greiðra, styttri og öruggari leiða fara jafnt og þétt vaxandi jafnt í raun sem í hugum fólks. Er því sú von sett fram að þetta megi allt skoða og rannsaka sem best, eftir atvikum af hálfu væntanlegs innviðafélags eða sem samvinnuverkefni skv. lögum þar um og þau sveitarfélög sem helst hafa um þetta að segja svo og opinberir aðilar eins og innviðaráðherra og Vegagerðin o.fl. sýni þessu skilning og vilja til samstarfs um frekari könnun á þessu. Af hálfu Samgöngufélagsins verður á næstunni leitast við að standa að frekari rannsóknum, samtali og samstarfi við þá sem að þetta mál varðar mest og mestu ráða um framgang þess. Skal hér að lokum nefnt að ekki væri óeðlilegt að gert ráð fyrir einhverjum fjármunum til könnunar á þessu mikilvæga verkefni í þeirri samgönguáætlun, sem nú er til lokameðferðar hjá Alþingi. Höfundur er áhugamaður um greiðar samgöngur og fyrirsvarsmaður Samgöngufélagsins. Hlekkir á efni sem vísað er til í greininni: Viðhorfskönnun á netinu um gerð vega Húnavallaleið og Vindheimaleið sem stóð frá lokum febrúar til seinni hluta maí 2026. Síða viðhorfskönnunarinnar á vef Samgöngufélagins þar sem vísað er á ýmis gögn varðandi málið. Umsögn Samgöngufélagsins um tillögu að samgönguáætlun 2026-2040, dags. 13. febrúar 2026. Bréf Vegagerðarinnar til Samgöngufélagsins, dags. 18. febrúar 2026, þar sem afstað hennar til gerð vega þessar leiðir kemur fram auk fleiri upplýsinga. Umferðaröryggiskönnun fyrir Húnavallaleið unnin fyrir Samgöngufgélagið af Verkís verkfræðistofu, dags í desember 2026. Umferðaröryggiskönnun fyrir Vindheimaleið unnin fyrir Samgöngufélagið af Verkís verkfræðistofu desember 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngumál Vegagerð Húnabyggð Mest lesið Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun