Viðskipti innlent

Hækka vöru­verð: „Um­hverfið mjög krefjandi“

Agnar Már Másson skrifar
Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent í verði.
Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent í verði. Samsett Mynd

Hækkandi ál- og olíuverð er farið að skila sér í verðhækkunum á mat- og drykkjarvöru, að sögn framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar en félagið tilkynnti nýlega um verðhækkanir á öllum sínum framleiðsluvörum, svo sem gosdrykkjum. Rekstrarumhverfið sé orðið krefjandi en hann sé áfram bjartsýnn.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson tilkynnti viðskiptavinum sínum á föstudag að hún hygðist hækka verð á framleiðsluvörum sínum um 0,8–2,1 prósent og tóku breytingarnar gildi um helgina.

Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, segir við Vísi að hækkunin sé til komin vegna hækkandi olíu- og álverðs í heiminum, sem átök í Mið-Austurlöndunum og einkum lokun Hormússunds hafa valdið enda er Persaflóinn ein helsta flutningsleið heims fyrir bæði olíu og ál. Mánuðinn fyrir árásirnar fóru að meðaltali um 129 skip um Hormússund á dag, en eftir að átökin hófust lokaðist nánast alveg fyrir skipaumferð.

Óli Rúnar Jónsson er framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar.Aðsend

„Olíuverð hefur annars vegar áhrif til hækkunar á flutningsverði til landsins, og skilar sér þannig inn. Og svo eru þetta óbein áhrif á plastið, allar umbúðir sem eru í plasti, hvort sem það eru flöskur, ytri pakkningar eða annað, þá er þetta allt mjög háð olíuverði.“

Allar framleiðsluvörur félagsins hækkuðu að lágmarki um 0,8 prósent en vörur í dós hækkuðu aftur á móti um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent í verði.

„Við erum að taka hluta á okkur en þetta er bara það sem við verðum að skila út. Svo eru vörur bara misviðkvæmar fyrir þessum hækkandi kostnaðarháttum og þess vegna er álagningin misjöfn,“ segir hann.

„Við erum alltaf háð þessum flutningi en svo eru vörur þar sem ál- og plastumbúðir eru stærri þáttur af kostnaðinum.“

Óli Rúnar segir að allar sínar dósir séu innfluttar enda engar slíkar framleiddar á Íslandi.

Erfitt er að sjá fyrir hvenær óvissu um olíuverð muni linna.

„Óvissa er svolítið orðin í þessu. En heilt yfir erum við bjartsýnir,“ segir Óli og tekur fram að félagið hafi mörg spennandi verkefni í pípunum. 

„En það er alveg ljóst að til styttri tíma er umhverfið mjög krefjandi og verður eitthvað áfram.“


Tengdar fréttir

Ölgerðin hækkar verðin

Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×