Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. júní 2026 14:55 Þetta mun hafa mikil áhrif á byggðalagið. Icelandair Icelandair hefur ákveðið að hætta flug til milli Íslands og Kulusuk á austurströnd Grænlands utan sumarmánuðanna. Frá og með áramótum verður aðeins flogið milli maí og október.
Icelandair hefur um árabil sinnt farþega- og fragtflugi til afskekktrar austurstrandarinnar. Um áramótin 2024-2025 hætti Icelandair flugi til Kulusuk í janúar- og febrúarmánuðum sem kom flatt upp á íbúa á svæðinu sem sögðu farir sínar ekki sléttar. Blikur hafa verið á lofti hvað smærri byggðir, og þar með smærri flugvelli, varðar frá því að nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í gagnið í höfuðborginni Nuuk. Flugfélög á við Icelandair sjá þar tækifæri til hagræðingar við að grysja flota sinn af smærri flugvélum sem myndu annars sinna flugi til áfangastaða á borð við Kulusuk. „Ekkert hægt að gera“ Grænlenski miðillinn Sermitsiaq greindi frá þessum áformum Icelandair en þar er rætt við Justus Hansen sem er samtímis þingmaður og fulltrúi í sveitarstjórn Sermersooq, byggðin á austurströndinni tilheyrir því sveitarfélagi. Justus Hansen situr bæði í sveitarstjórn Sermersooq og á þingi fyrir Demokraatit.Sermersooq Kommuneqarfik Hann harmaði þessa ákvörðun Icelandair mjög og sagði hana munu hafa alvarleg áhrif á atvinnulíf og lífsskilyrði í afskekktri byggðinni. „Það er því miður ekkert sem við getum gert, pólitískt séð. Icelandair er erlent félag sem heldur úti fluginu á markaðsforsendum, þannig að þeir fljúga auðvitað ekki, ef það borgar sig ekki,“ segir Justus við Sermitsiaq. Rekstrarkostnaður smærri véla hækkað „Flug á þessu tímabili krefst notkunar á minni gerð DHC-8 flugvéla félagsins, DHC-8-200. Rekstrarkostnaður við þessa flugvélategund hefur hækkað á undanförnum árum og tekjur af flugleiðinni hafa ekki þróast í takt. Vegna takmarkana flugvallarins er einungis unnt að nota stærri flugvélagerðina, DHC-8-400, á tímabilinu frá júní og fram í miðjan september. Flugtímabil til Kulusuk verður því framvegis bundið við sumar, þegar aðstæður leyfa notkun stærri flugvéla og rekstur er áreiðanlegri með tilliti til veðurs,“ segir Guðni Siguðrsson upplýsingafulltrúi Icelandair um málið. Hann segir að Icelandair geri sér grein fyrir því að ákvörðunin komi til með að hafa áhrif á samfélagið á Austur-Grænlandi. „Flugleiðin gegnir mikilvægu hlutverki fyrir svæðið en reynst hefur krefjandi að halda henni úti við núverandi rekstraraðstæður. Í því efnahagsumhverfi sem nú ríkir, þar sem rekstrarkostnaður hefur hækkað hratt, meðal annars vegna nýlegra hækkana á eldsneytisverði, þarf Icelandair að leggja áherslu á flugleiðir og -tímabil sem hægt er að reka á viðskiptalega sjálfbærum grunni,“ segir hann. Fyrirtæki á vanskilaskrá vegna póstleysis Justus Hansen er áhyggjufullur fyrir hönd heimabyggðarinnar. „Þetta lítur ekki vel út. Þetta er mikið áfall fyrir byggðina. Þetta hefur áhrif á póstþjónustu og afhendingu á ferskvörum til verslana og ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Og við erum annars með góðan gang í uppbyggingu svæðisins sem ferðamannaáfangastaðar,“ segir Justus. „Áður fengum við stóran hluta póstsins í gegnum Keflavík, og við erum í raun háð því. Pósturinn þarf helst að skila sér sem fyrst. Ég hef heyrt af fyrirtækjum sem hafa verið skráð á vanskilaskrá vegna þess að þau hafa greitt reikninga of seint síðastliðinn vetur, þar sem pósturinn hefur tafist.“
Grænland Icelandair Flug Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira