Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. júní 2026 20:43 Snorri tók til máls á eldhúsdeginum. Vísir/Vilhelm Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, fór hörðum orðum um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem hafi skilað brostnum væntingum, stórvesnandi efnahagsástandi og snúið sér að Evrópusambandinu þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi. Íslendingar séu ekki útskiptanlegar einingar. Hann sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda.
Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld og tók Snorri til máls fyrir hönd Miðflokksins í fyrri umferð umræðanna. Hann byrjaði á því að hrósa Kristrúnu Frostadóttur fyrir tveggja ára gamla ræðu en þar hafi hún lýst vel óstjórn og ábyrgðarleysi þáverandi ríkisstjórnar auk þess sem hún lofaði því að tryggja aftur efnahagslegan stöðugleika í landinu. „Hér stöndum við nú og okkur er öllum ljóst að þær væntingar sem vöknuðu með hluta þjóðarinnar þá um nýtt upphaf í íslenskum stjórnmálum hafa því miður brostið,“ sagði Snorri. „Það er ekki lengur hægt að þræta fyrir stórversnandi efnahagsástand eða snúa sér út úr raunveruleika almennings í landinu með spuna almannatengla. Að baki eru ítrekuð alvarleg mistök í hagstjórn landsins sem var varað við úr öllum áttum, sögulegt met í ríkisútgjöldum, sóun sem knýr áfram verðbólguna.“ Evrópuleiðangur í stað efnahagsmála Hann segir að ekki sé lengur hægt að þræta fyrir ástandið. „Maður óttast að það geti enginn fjöldi glaðlegra selfía á Facebook-síðu forsætisráðherrans breitt yfir þá staðreynd að kjör íslensks almennings hafa versnað undir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Þannig að hvað er til bragðs að taka? Jú, við breytum um plan,“ segir Snorri. „Í stað þess að fara í Evrópuleiðangurinn þegar búið er að ná tökum á efnahagsmálum, líkt og boðað var, þá er farið í Evrópuleiðangurinn í stað þess að ná tökum á efnahagsmálum.“ Hann sneri einnig málinu að orðum Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, sem Snorri segir hafa sagt að það væri ekki vandamál ef atvinnuleysi myndi aukast með inngöngu í Evrópusambandið. „Af því að þá færi fólk sig bara til og frá landinu, það er að segja mannfólk sem gengur í Excel-skjalinu undir nafninu hreyfanlegt vinnuafl. Nú, ef þetta stæðist gæti maður að minnsta kosti vonast eftir einhverju lágmarksjafnvægi í innflytjendamálum og í innflytjendastraumnum til landsins og þá gæti maður fagnað því,“ segir Snorri. Hins vegar hafi atvinnuleysi farið ört vaxandi á sama tíma og innflytjendur streymdu til landsins. „Þannig að það er kannski fyrsta skrefið út úr ógöngunum að baunateljararnir fari að horfast í augu við að íslenskt samfélag er ekki Excel-skjal. Ísland er ekki bara eitthvert evrópskt efnahagssvæði eins og hvað annað. Íslendingar eru ekki útskiptanlegar einingar. Við erum þjóð,“ segir Snorri. Hann nefnir orð sem Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, á að hafa látið falla og spurt hvort í raun væri munur á nýbúum frá Noregi á landsnámsöld og svo nýbúum nútímans. „Þa er að segja, er einhver munur á landnema og innflytjanda. Það er hægt að fara lengra með það. Er einhver munur á Íslendingi og útlendingi? Eða jafnvel er eitthvað til sem heitir Íslendingur? Það er nefnilega ekkert fast í hendi lengur.“ Alræðistilburðir ráðherra Snorri segir slíkt vera skilgreiningaratriði og að allt sé „afstætt í innfluttum furðuheimi þessarar alþjóðlegu frjálslyndiselítu“, elítu sem Hanna Katrín sé sjálf fulltrúi fyrir. „Það er allt skilgreiningaratriði. Kyn mannsins, þau eru ekki lengur tvö en þú mátt ekki vita hvað þau eru mörg. Það er heldur ekki punkturinn. Punkturinn er að þú átt að hafa þig hægan og hlýðan,“ segir hann. Samþykki hann ekki að taka þegjand við hinum „síbreytilega fantasíuheimi“ verður hann kallaður illum nöfnum. „En til þess að gæta sanngirni er auðvitað rétt að gæta þess að það er ákveðin bót í máli fyrir þessa ráðherra Viðreisnar að þetta gerræði, þessar kerfisbundnu aðfarir að frjálsi hugsun venjulegra Íslendinga, þessir alræðistilburðir, þeir eru sem betur fer allir í nafni frjálslyndis og mannréttinda.“ Upplifun í stað alvöru stjórnar Snorri segir ríkisstjórnina hafa slegið nýtt met í að veita íslenskan ríkisborgararétt. „Eftir á að hyggja hefði maður kannski bara átt að trúa hæstvirtum dómsmálaráðherra þegar hún lýsti því hér í vetur að allt heila markmiðið í málaflokknum, útlendingamálum, væri að fólk upplifði að stjórnvöld hefðu stjórn á málaflokknum, ekki að stjórnvöld næðu stjórn á málaflokknum, heldur að fólk upplifði að svo væri,“ segir hann. Hann segir það markmið ekki hafa náðst þar sem sú er ekki upplifun fólksins. „Öllu heldur fer vaxandi ónotatilfinning á meðal almennings um að sjálf þjóðmenning okkar til þúsunda ára hafi mögulega aldrei verið í eins brothættri stöðu.“
Miðflokkurinn Alþingi Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira