Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar 11. júní 2026 10:01 Í kjölfar þess að RÚV kynnti gestaval fyrir þátt Silfursins þann 8. júní spratt upp hávær gagnrýni. Beindist hún að meintri hlutdrægni af hálfu RÚV, en gagnrýnendur fullyrtu að allir viðmælendurnir væru sömu skoðunnar hvað varðar þjóðaratkvæðagreiðslu um upphaf aðildarviðræðna við Evrópusambandið, eða að þjóðin ætti að ganga til slíkra viðræðna. Myndaðist strax mikil umræða. Fjöldi fólks tók undir gagnrýnina, og fjöldi fólks tók til varnar fyrir hönd RÚV. Þátturinn heppnaðist svo, að flestir virðast telja, vel. Umræðan var málefnaleg og yfirveguð, sem er vissulega jákvæð tilbreyting. Eftir útsendingu þáttarins tóku margir til máls á ný um þessa meintu hlutdrægni RÚV og sögðu þessa vel heppnuðu umræðu til marks um að gagnrýnin hefði ekki átt rétt á sér. Rauður þráður málflutnings þessa fólks var sá að RÚV hefði fengið til sín sérfræðinga í stað stjórnmálamanna og annara sem tala opinskátt fyrir tiltekinni afstöðu. Þáttastjórnandi sjálfur tók í sama streng í athugasemd á Facebook. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga að þessi málflutningur byggir á tvenns konar misskilningi. Annars vegar er það réttlæting ákvörðunar á grundvelli afleiðinga hennar - þetta er rökvilla sem nefnist á ensku “outcome bias” en má þýða á íslensku sem eftirá réttlæting. Ákvarðanir eru teknar á tilteknum tíma á þeim forsendum sem liggja fyrir á þeim tíma. Viðkomandi veit ekki hvað framtíðin hefur í för með sér, og getur því ekki rökstutt ákvörðun á grundvelli þess sem kemur til með að gerast. Flestir tengja þessa rökvillu eflaust við fótboltann, en mat flestra okkar áhorfenda á frammistöðu þjálfara fótboltaliðs er nær undantekningarlaust á grundvelli þessarar rökvillu: Við vitum ekki hvað þjálfarinn er að gera, við vitum ekki hvað hann veit, hvaða forsendur hann hefur fyrir ákvörðunum sínum, og metum allar ákvarðanir hans - skiptingar eru klassískt dæmi - út frá niðurstöðu leiksins. Hins vegar er það svo tilhneygingin til að telja sérfræðinga ekki hlutdræga. Þetta er mjög rík tilhneyging, en mörgum finnst, einhverra hluta vegna, að það sem viðkomandi sérfræðingur segi um sérsvið sitt sé byggt á staðreyndum einum og sér. Að málflutningur sérfræðingsins sé ekki litað af eigin mati sem svo byggist á eigin gildum, skoðunum og trú. Þetta er bersýnilega rangt, en sérfræðingar sama sviðs deila í sífellu um málefni sviðs síns. Það hefur verið sagt að hatrömmustu deilurnar eiga sér stað á milli fræðimanna um einhver smáatriði sem skipta engan nokkru máli. Enn fremur vil ég nefna eina aðra vinsæla málsvörn gestavalsins, en hún er sú að þátttakendur hafi ekki sagt neitt ósatt. Er gagnrýnandinn hvattur til að benda á tilvik þar sem gestur sagði ósatt. Þetta horfir hins vegar fram hjá því að hlutdrægnir aðilar, þegar þeir ræða um umdeilt atriði, segja oft sannleikann - en botna ekki setninguna. Tökum sem dæmi sérfræðing sem fullyrðir að “Ísland taki nú þegar sjálfkrafa við reglum Evrópusambandsins” - þessi setning er rétt, en hún dregur upp allt aðra mynd en fullyrðingin að “Ísland taki sjálfkrafa við afmörkuðum hluta regluverks Evrópusambandsins, eða þeim sem varðar innri markað Evrópusambandsins - aðrir hlutar regluverksins liggja utan EES-samningsins”. Þetta eru bæði sannar fullyrðingar, hvorugur sérfræðingurinn sagði ósatt, en áhrifin á hlustandann eru mjög ólík eftir því hvaða fullyrðingu hann heyrir. Hér skiptir máli að umræða um umdeilt og eldfimt málefni innihaldi sérfræðinga beggja megin málsins, en það tryggir að hlustandi heyri allar hliðar málsins og geti þannig myndað eigin afstöðu á traustum grunni. Mér þótti mjög dapurt að sjá þáttastjórnanda opinbera skilningsleysi sitt á þessu í athugasemd á Facebook þar sem hún varði gestavalið á þeirri forsendu að um sérfræðinga væri að ræða. Það eru auðvitað til fjöldi sérfræðinga beggja megin málsins. Sérfræðingar sem sátu við samningsborðið í fyrri aðildarviðræðum. RÚV ber að gæta hlutleysis í svona málum, og það er óréttlátt að okkur þeim sem ofbýður svona fréttamennska sé gert að styrkja hana fjárhagslega. Engin leið er fyrir hlustandann að hvetja betri fréttamennsku og refsa slæmri. Er þetta því, að mínu mati, enn frekari rök fyrir því að leggja niður þessa arfleiðarstofnun sem er Ríkisútvarpið. Höfundur er tölvunarfræðingur og talsmaður frjálslyndis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisútvarpið Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Af hverju ég elska Ísland Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hugleiðing á degi náttúrunnar Kolbrún Haraldsdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram,Anna Ragna Fossberg,Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifar Skoðun Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Framtíð endurhæfingar á Norðurlandi Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fær þjóðin eðlilega rentu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram,Anna Ragna Fossberg,Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifar