Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar 11. júní 2026 08:16 Á föstudaginn var sat hinn sjö mánaða Sam í fangi móður sinnar í aftursæti bifreiðar fjölskyldunnar þegar þau voru á heimleið eftir að hafa ekið ömmu hans heim til sín. Þegar fjölskyldan var að aka framhjá ólöglegri landtökubyggð í Hebron á Vesturbakkanum, nálægt heimili ömmunnar, sáu þau ísraelska hernámsliða gefa þeim merki um að stoppa. Faðir Sam, Fahd, sem ók bílnum hægði á og stöðvaði og rétti upp hendurnar til að sýna svo enginn vafi léki á að engin hætta stafaði af þeim. Þrátt fyrir það miðaði einn hermanna hernámsliðsins riffli sínum og skaut í gegnum framrúðu bílsins. Kúlan straukst við hönd Fahd og hæfði svo Sam beint í andlitið áður en hún festist að lokum nálægt hjarta móður hans. Sam dó af sárum sínum. Hinir ísraelsku hernámsliðar veittu enga aðstoð og komu sér af vettvangi. Sjö mánaða. Maður spyr sig hvernig þetta geti gerst. Hvernig hermaður getur miðað á bíl fjölskyldu og hleypt af? Svarið finnst ekki einungis í persónulegum misbrestum eða illsku þessa tiltekna hermanns, heldur þeim hlutum sem ísraelskt samfélag hefur talið sér í trú um Palestínumenn áratugum saman. Strax árið 1957 orðaði þáverandi forsætisráðherra Ísraels, hin úkraínsk-fædda Golda Meir, þetta á þennan hátt: „Friður kemst á þegar Arabarnir elska börnin sín meira en þau hata okkur“ Þessi setning hefur verið endurtekin svo oft í gegnum tíðina að fólk er hætt að pæla hvað Meir var raunverulega að segja. Hún sagði að palestínskir foreldrar elskuðu börnin sín minna en annað fólk. Að palestínskir foreldrar séu hreinlega minna mennsk en við hin, sem elskum börnin okkar. Sam Fahd Abu Haikal Trúir því einhver virkilega í alvöru að Fahd hafi elskað son sinn minna en aðrir feður elska sína syni? Að hann hafi ekki strokið honum um hárið? Að hann hafi ekki brosað þegar hann hló barnslegum hlátri sínum? Að hann hafi ekki vaknað um miðjar nætur til að hugga hann? Ekki gert áætlanir um framtíð hans? Ekki reynt að sjá fyrir sér manninn sem hann myndi verða? Samt er það nákvæmlega það sem fólst í orðum Goldu Meir. Að palestínskir foreldrar séu á einhvern hátt frábrugðnir öðrum foreldrum. Að ást þeirra á börnum sínum sé veikari. Síðri. Að sorg þeirra sé minni. Að börnin þeirra skipti þau minna máli. Golda Meir er ekkert einsdæmi. Þessi hugsunarháttur, þessi afmennskun á Palestínumönnum, hefur litað ísraelskt samfélag alveg frá upphafi. Það er í skjóli þessarar afmennskunar sem hermaður í hernámsliði skýtur á fjölskyldubifreið sem stöðvað hefur för sína og honum stafar engin hætta af. Sam er fyrir vikið langt frá því að vera einn. Hind Rajab var fimm ára gömul þegar hún sat föst í bifreið umkringd líkum fjölskyldu sinnar og grátbað björgunarsveitir um hjálp í síma. Ísraelskir hernámsliðar skutu bílinn 335 sinnum og drápu hana, og drápu svo sjúkraflutningamenn Rauða hálfmánans sem sendir voru á vettvang til að bjarga henni. Muhammad Abu Khdeir var sextán ára þegar honum var rænt af ísraelskum landtökumönnum, hann barinn og síðan brenndur lifandi. Á Gaza hafa tugir þúsunda barna verið drepin af ísraelska hernámsliðinu frá október 2023 og hundruð frá meintu vopnahléi. Svona get ég haldið lengi áfram. Á dögunum fékk de Volksrant evrópsku fréttaverðlaunin fyrir rannsókn sína á mynstri sem læknar alls staðar að úr heiminum sáu hjá börnum á Gaza meðan þeir störfuðu þar: Börn komu endurtekið inn á sjúkrahús og skurðstofur þeirra með eitt skotsár í höfði eða í bringu. Að minnsta kosti 114 slík tilfelli voru skráð, en ætla má að þau séu mun fleiri í ljósi þess að læknarnir sem greindu frá þeim störfuðu aðeins á nokkrum sjúkrahúsa Gaza og yfirleitt bara í stuttan tíma. Það má líka draga þá ályktun að flest börn sem skotin voru á þennan hátt hafi líkast til dáið samstundis og fyrir vikið aldrei verið færð undir læknishendur og þess vegna ekki talin með í neinum tölum. Hverju sem líður er ljóst að þetta var ekki aðeins algengt, heldur kerfisbundið. Höfuð eru lítil skotmörk. Barnshöfuð eru enn minni skotmörk. Með öðrum orðum, svona gerist ekki bara, sérstaklega ekki að þessu umfangi. Einhver miðaði á þessi börn og ætlaði sér að hæfa þau í höfuðið eða bringuna. Ætlaði sér að drepa þau. Slíkt getur aðeins átt sér stað þegar viðkomandi sér ekki barnið sem barn. Sér ekki manneskjuna sem manneskju. Þessi hugsunarháttur lýsir framgöngu ísraelska hernámsliðsins á Gazaströndinni undanfarin þrjú ár og birtist vel í orðum þáverandi varnarmálaráðherra Ísraels, Yoav Galant, þegar hann sagði þann 9. október 2023 að þeir væru að berjast við „mennsk dýr“, sem kallast svo sannarlega á við inntak orða Golda Meir 76 árum fyrr. En afmennskunin einskorðast ekki við slík orð né einstaka hermenn sem framfylgja vilja þeirra sem svona tala. Afmennskunin byrjar ekki þar. Hún byrjar þegar palestínskir foreldrar eru taldir elska börnin sín minna en aðrir foreldrar. Hún byrjar þegar sorg palenstínskrar móður er talin minna virði en sorg annarrar móður. Hún byrjar þegar palestínskt barn hættir að vera barn og verður fyrst og fremst . Í augum þess sem alist hefur upp í samfélagi sem afmennskar heila þjóð var Sam einfaldlega ekki barn sem átti skilið að lifa. Hann var Palestínumaður. Hind var ekki barn. Hún var Palestínumaður. Börnin í rannsókn de Volkskrant voru ekki börn. Þau voru Palestínumenn. Tugir þúsunda barna sem drepin hafa verið á Gaza undanfarin þrjú ár voru ekki börn. Þau voru Palestínumenn. Og þess vegna gat sjö mánaða drengur setið í fangi móður sinnar á leiðinni heim frá ömmu sinni og verið skotinn í andlitið. Höfundur er faðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun