Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Aron Guðmundsson skrifar 11. júní 2026 10:01 Gunnlaugur Árni mætir á U.S. Open í næstu viku líkt og Rory McIlroy og Scottie Scheffler Vísir/Samsett Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður. „
Það er erfitt að lýsa því en þetta var bara tilfinning sem ég hafði yfir allan daginn. Að þetta væri góður daginn,“ segir Gunnlaugur Árni í samtali við íþróttadeild Sýnar um daginn örlagaríka þar sem að hann tryggði sér sæti á risamóti í fyrsta sinn. „Ég var bara að reyna halda mér í því mómenti. Hugsa þetta eins og þetta væri bara eitthvað sem væri nú þegar skrifað. Ætlaði mér bara að njóta þess að vera partur af því.“ Gott að fá högg í andlitið Á lokaúrtökumótinu voru spilaðar 36 holur á einum og sama deginum, tveir hringir og fjögur sæti á U.S. Open í boði. Fyrri hringur af tveimur gekk eins og í sögu en strax á fyrstu holu á þeim seinni fékk Gunnlaugur tvöfaldan skolla. Í stað þess að láta það draga sig niður, tvíefldist kappinn, sótti þrjá fugla á næstu fjórum holum og öll vitum við hvernig sögunni lauk. „Eftir á og í mómentinu hugsaði ég að þetta væri í raun það besta sem hefði geta komið fyrir. Að fá smá högg í andlitið. Fattaði að þetta væri ekki bara að fara vera á cruise control alla leið. Þetta gaf mér smá spark í því að sækja fugla. Þetta er svolítið þannig. Maður horfir á hverja einustu holu og reynir að finna leiðir til að fá fugl. Sóknargolf á hverri einustu holu. Það í rauninni var frábært að ég fékk smá bakslag, smá högg. Það hélt mér í sóknarhugarfarinu, lét mig vilja þetta meira.“ Kominn hinu megin við reipið Plön breytast hratt, Gunnlaugur hefur slegið í gegn í Háskólagólfinu með liði LSU, er núna á leið á sitt fyrsta risamót,aðeins tvítugur, strax í næstu viku, þar sem hetjurnar hans, bestu kyflingar í heimi bíða. Menn á borð við Scottie Scheffler, sem er efsti kylfingur heimslistans, og Rory McIlroy sem hefur unnið öll þau risamót sem í boði eru. „Ég er einmitt spenntur fyrir því að upplifa það að vera í sama klefa og þeir. Að gera mig tilbúinn fyrir hring. Hvernig tilfinningarnar verða þegar maður er hliðina á einhverjum í klúbbhúsinu að borða eða hvað sem það er. Að vera allt í einu hinu megin við reipið. Maður ólst upp, var að dást að þessum kylfingum, þeir voru og eru enn þá fyrirmyndir. Að vera núna á sama sviði, keppa við þá á þessu móti, er eitthvað sem verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa.“ „Get gert hvað sem ég vil í þessu móti“ Ef það er eitthvað sem einkennir Gunnlaug Árna þá er það hans frábæra hugarfar. Hann lætur ekki draga sig upp í skýjaborgir. Er með markmið og leiðina að því að ná þeim, aðlagar sig að aðstæðum. Fyrir hann er mikilvægt að muna að U.S. Open, þrátt fyrir að vera eitt stærsta og mest krefjandi mót í heimi, sé bara enn eitt golfmótið. „Núna þegar maður er að fara yfir endalaust af pælingu er varðar flug og plön, bóka gistingu fyrir mótið og annað þá er maður að fatta að við erum að fara í þetta mót. Svo á móti þarf maður líka að klípa sig og muna, þetta er bara annað golfmót. Jú þetta er á annari plánetu, hvað varðar stærð fyrir mig og Íslendinga en núna þarf maður að taka inn gleðina að hafa komið sér þangað. Svo um leið og maður mætir á keppnisstað þá er þetta bara golfmót. Þarf að undirbúa mig til þess að spila minn leik og gera mitt besta. Ég veit að í lok dags, ef ég undirbý mig eins og fyrir hvert annað mót þá get ég gert hvað sem ég vil í þessu móti. Reyna taka eins mikið af góðum ákvörðunum og maður getur, undirbúa sig vel. Svo er það bara að spila gólf, íþróttina sem maður ólst upp við að spila.“ Sýnt verður beint frá U.S. Open risamótinu í golfi á sportrásum Sýnar. Mótið fer fram á Shinnecock Hills Golf Club vellinum í Southampton í New York fylki og hefst á fimmtudaginn í næstu viku.
Opna bandaríska Golf Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Sjá meira