Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Árni Sæberg skrifar 11. júní 2026 13:14 Tinna Guðrún Barkardóttir varð fyrir líkamsárás af hálfu skjólstæðings í Vinakoti í mars 2022. Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu.
Landsréttur staðfesti dóm yfir konunni sem réðst á Tinnu Guðrúnu Barkardóttur, sem þá var starfsmaður Vinakots, í mars síðastliðnum. Hlaut fimmtíu prósenta örorku Í héraðsdómi hafði árásarkonan verið dæmd í 18 mánaða fangelsi með skilorði til þriggja ára, fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa veist að Tinnu í Vinakoti í mars 2022, með því að hrinda henni, taka með báðum höndum í úlpu hennar og ýta henni ítrekað upp að útidyrahurðinni. Síðar, þegar Tinna var sest í sófa inni í herbergi, mun hún hafa togað í fætur hennar þannig að hún datt úr sófanum og því næst dregið hana fram í íbúðina og reynt að skella höfði hennar utan í vegg í stofunni, að því er segir í dómi héraðsdóms. Í framhaldinu hefði hún farið aftur inn í herbergi og sest í sófa en konan þá komið til hennar og ýtt höfði hennar aftur á bak þannig að það rakst í gluggakistu. Hún mun svo hafa rifið í hár hennar og barið höfði hennar ítrekað í gluggakistuna. Loks veittist konan að Tinnu með því að grípa í hár hennar og axlir og slá henni utan í veggi og hurðir, allt með nánar tilgreindum afleiðingum fyrir Tinnu. Tinna hlaut heilahristing, klórför, kúlur á höfði og gat á hljóðhimnu vegna árásarinnar. Þá verndaði fyrri helftarlömun sem hún bjó við eftir heilablóðfall árið 2015 en hún hafði verið hjá sjúkraþjálfara vegna þess í aðdraganda árásarinnar. Fyrir dómi var lagt fram nýtt álit örorkunefndar frá 16. janúar 2026 þar sem kom fram að varanlegur miski Tinnu hafi verið metinn 50 stig og varanleg örorka metin 50%. Fyrra mat, sem héraðsdómur byggði á, mat miskann 35 stig og örorkuna um 40%. Sambærilegt mál hafi ekki áður komið til kasta dómstóla Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni árásarkonunnar segir að hún hafi byggt á því að niðurstaða málsins hafi verulega almenna þýðingu og mikilvægt sé að fá úrlausn Hæstaréttar um hana. Það sé óvenjulegt og sambærilegt mál hafi ekki áður komið til kasta dómstóla. Atvik hafi enda gerst á þáverandi heimili hennar þar sem hún hafi verið vistuð á vegum félagsmálayfirvalda og Tinna Guðrún verið umsjónaraðili hennar. Niðurstaða málsins varði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu. Þá hafi hún byggt á því að dómur Landsréttar sé rangur að formi og efni. Litið hafi verið fram hjá upplýsingum og gögnum sem hefðu átt að leiða til sýknu og lítið sem ekkert vikið að málsvörnum um sönnun og refsileysisástæður. Nauðsynlegt sé því að dómur Landsréttar fái endurskoðun Hæstaréttar. Loks hafi málið mikla þýðingu fyrir hana. Endurskoða ekki munnlegan framburð Í niðurstöðukafla ákvörðunarinnar segir að að virtum gögnum málsins verði ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum laga um meðferð sakamála. Þá séu ekki efni til að beita heimild sömu laga til að taka mál fyrir í Hæstarétti ef ætla má að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggi jafnframt fyrst og fremst á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verði ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti. Beiðninni sé því hafnað.
Dómsmál Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira