Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Rakel Sveinsdóttir skrifar 13. júní 2026 10:00 Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaupa, segist auðvitað hafa prófað að byrja daginn á sítrónuvatni. Tilhlökkunin í fyrsta kaffibollann sé hins vegar svo mikil að hann er fyrsta morgunverkið, enda byrjar Eva að hlakka til hans kvöldinu áður. Vísir/Vilhelm Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Yfirleitt vakna ég alla daga fyrir 06:00, við búum svo vel að eiga mannlega vekjaraklukku sem er tveggja ára og hún kýs yfirleitt að grípa daginn snemma. Ég er reyndar mikil morgunmanneskja og því auðvelt að hoppa fram úr eftir smá kúr með litlu minni. Ég vakna líka snemma um helgar og mér finnst mjög gott að vera komin á fætur á undan öllum öðrum á heimilinu. Að sitja með fyrsta kaffibollann í ró og næði áður en dagurinn fer af stað er líklega ein af mínum uppáhaldsstundum.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? Ég byrja alltaf á að setja kaffið á. Það eru örugglega til betri og hollari leiðir til að vakna, ég hef auðvitað prófað sítrónuvatnið en það er eitthvað við fyrsta kaffibollann sem ég hlakka til að fá mér kvöldið áður. Ég reyni að fara tvisvar til þrisvar sinnum í viku í hlaup eða aðra hreyfingu áður en vinnudagurinn hefst. Dagurinn verður einfaldlega betri þegar ég næ því. Núna þegar morgnarnir eru bjartir og fallegir er líka mun auðveldara að skella sér út að hlaupa. Annars snýst morgunrútínan að mestu um að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma sem er stundum stærra afrek en hlaupatúrinn sjálfur.“ Hvað á það til að hræða úr þér líftóruna? „Köngulær, án nokkurs vafa. Ég skil ekki alveg af hverju, því ég er ekkert hrædd við önnur skordýr. En ef könguló birtist skyndilega þá hverfur öll skynsemi.“ Eva Laufey segist mjög skipulögð á pappírnum, verkefnalistinn sé oftast langur en hún sé þó ekki að keppast við að klára hann alla daga; hann eigi að vera stuðningstæki en ekki streituvaldur. Í heimi markaðsmála geti dagskráin reyndar breyst á fimm mínútum.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Þessa dagana erum við á fullu að undirbúa sumarherferðina okkar og það er alltaf líf og fjör sem fylgir því að skipuleggja sumarið. Dagarnir snúast um markaðsherferðir, viðburði og alls konar skemmtileg verkefni sem við viljum færa viðskiptavinum Hagkaups. Mér finnst sérstaklega gaman að finna leiðir til að sýna starfsfólkið okkar meira, því á bak við öll sterk vörumerki er fólk og sögur sem vert er að segja frá.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég er mjög skipulögð á pappír og alltaf með alls konar lista, dagatöl og áminningar. To do-listinn minn er yfirleitt frekar langur, en ég hef lært að markmiðið er ekki endilega að klára allan listann á einum degi. Það er miklu mikilvægara að einbeita sér að forgangsmálunum og leyfa listanum að vera til stuðnings frekar en streituvaldur. Síðan kemur raunveruleikinn stundum og breytir öllu á fimm mínútum. Markaðsmál eru oft þannig að maður þarf að vera bæði vel skipulagður og tilbúinn að bregðast hratt við þegar ný tækifæri eða verkefni koma upp. Það er einmitt það sem gerir starfið svo skemmtilegt.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég reyni að vera komin upp í rúm um klukkan tíu, en það gengur misvel, sérstaklega á þessum árstíma þegar dagarnir eru svo bjartir og langir. Undanfarið hef ég meira að segja verið frameftir úti í garði, sem gerist ekki alveg á hverju kvöldi hjá mér. Það er eitthvað við birtuna sem gefur manni auka orku. Svo finnst mér líka mjög notalegt að ná einum sjónvarpsþætti með manninum mínum í lok dags. Ég rembist stundum við að hanga vakandi til að klára þáttinn, sérstaklega eftir annasaman dag, en yfirleitt endar það þannig að ég sofna nánast um leið og höfuðið snertir koddann.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00 „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin. 30. maí 2026 10:00 Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn. 23. maí 2026 10:02 Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau. 16. maí 2026 10:01 Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02 Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00
„Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin. 30. maí 2026 10:00
Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn. 23. maí 2026 10:02
Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau. 16. maí 2026 10:01
Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02