Erlent

Facebook lá niðri

Agnar Már Másson skrifar
Facebook er í eigu Meta.
Facebook er í eigu Meta. Vísir/Getty

Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri í um klukkustund síðdegis í dag, samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector.

Þar kom fram að fólk ætti í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Fólk átti í erfiðleikum með að skrá sig inn í forritið. Sumir notendur voru skráðir út úr símaforritinu vegna „óvæntrar villu.“

Þá virtist áhrifa gæta hjá Instagram og Messenger, sem einnig eru í eigu Meta, tæknirisa Marks Zuckerbergs. 

Meta hefur ekki gefið út útskýringar vegna málsins en miðlarnir virðast aftur hafa komist í lag klukkan 14.20 í dag.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×