Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar 13. júní 2026 10:18 Bakslag gegn jafnrétti í samtímanum Eitt af því sem einkennir samtíma okkar hvað skýrast er sú togstreita sem hefur myndast milli aukins jafnréttis annars vegar og vaxandi andspyrnu gegn því hins vegar. Á sama tíma og konur hafa öðlast meira sjálfstæði, aukna menntun, efnahagslegt vald og meira frelsi til að skilgreina eigið líf, þá hefur einnig orðið sýnileg aukning í orðræðu sem lýsir þessum breytingum sem samfélagslegri ógn fremur en lýðræðislegum framförum. Þessi þróun birtist ekki lengur eingöngu á jaðri internetsins eða innan afmarkaðra öfgahópa. Hún hefur í auknum mæli flust inn í meginstraum samfélagsumræðunnar; í nostalgíska orðræðu um „hefðbundin gildi“, í sívaxandi andstöðu við femínisma, í pólitískum hreyfingum sem vilja endurskilgreina réttindi kvenna og minnihlutahópa og í þeirri síendurteknu hugmynd að samfélagsleg staða karla hafi veikst vegna þess að konur hafi „farið of langt“. Lýðræðisleg afturför og pólitísk óvissa Það væri þó alvarleg einföldun að afgreiða þessa þróun sem jaðaröfgahyggju eða tilfallandi bakslag. Hún er hluti af stærri alþjóðlegri undiröldu þar sem lýðræðisleg réttindi sem áður þóttu sjálfsögð eru ekki lengur talin óumdeilanleg. Á síðustu árum hafa víða orðið aukinn pólitískur og menningarlegur þrýstingur á æxlunarrétt kvenna, réttindi hinsegin fólks, fræðilega umræðu um kyn og sjálfa hugmyndina um kerfislægt misrétti. Réttindi sem byggð hafa verið upp í áratugi eru nú endurrömmuð sem „umdeild“, „of róttæk“ eða jafnvel sem samfélagslegt ójafnvægi fremur en lýðræðisleg framþróun. Slík orðræða verður sérstaklega áhrifarík á tímum félagslegs og efnahagslegs óöryggis þar sem aukinn ójöfnuður, veikara félagslegt öryggisnet og áhrif nýfrjálshyggju hafa víða grafið undan samfélagslegri tilfinningu fyrir stöðugleika og að tilheyra. Við slíkar aðstæður skapast frjór jarðvegur fyrir pólitísk öfl sem byggja fylgi sitt á nostalgíu, ótta og loforðum um að endurreisa „náttúrulega reglu“ samfélagsins. Hægri-popúlismi hefur ítrekað nýtt þessa óvissu með því að endurramma samfélagslegar framfarir sem tap; tap á stöðu, áhrifum, hefðbundnum hlutverkum eða menningarlegri yfirburðastöðu. Þá verða jafnréttisframfarir ekki lengur fyrst og fremst tákn um aukið frelsi heldur merki um samfélag sem hafi farið úr skorðum. Backlash – fræði og söguleg mynstur Femínískir fræðimenn á borð við Susan Faludi hafa lengi bent á að framfarir í réttindabaráttu kvenna hafi ítrekað kallað fram menningarlegt bakslag þar sem aukið frelsi þeirra er sett fram sem orsök samfélagslegrar upplausnar. Saga jafnréttisbaráttu sýnir þetta skýrt. Þegar konur fengu aukin pólitísk réttindi voru þær sagðar ógna fjölskyldunni. Þegar þær fóru í auknum mæli út á vinnumarkaðinn voru þær sagðar veikja samfélagsgerðina. Þegar þær fóru að tala opinberlega um kynbundið ofbeldi voru þær sakaðar um að ganga „of langt“. Og nú, þegar konur eru síður tilbúnar að sætta sig við ójafnvægi í samböndum, tilfinningalega ábyrgð eða kynferðislegt misrétti, birtist sama grunnspurningin enn á ný: hvort jafnrétti hafi einfaldlega gengið of langt. Vanlíðan karla og tilfærsla ábyrgðar Sú þróun verður sérstaklega áhugaverð í ljósi þess að hún á sér stað samhliða sífellt meiri umræðu um vanlíðan karla; aukinn einmanaleika, félagslega einangrun, verri geðheilsu og veikara tengslanet. Það skiptir þó máli að undirstrika að vanlíðan karla er raunveruleg og verðskudar alvarlega samfélagslega umræðu. Vandinn verður fyrst þegar skýringarnar á þeirri vanlíðan færast frá félagsmótun, samfélagsgerð og menningu yfir á frelsi og sjálfstæði kvenna. Í stað þess að umræðan leiði til gagnrýninnar skoðunar á félagsmótun karla eða þeim hugmyndum um karlmennsku sem samfélagið viðheldur, færist ábyrgðin aftur og aftur yfir á konur. Konur eru sagðar of sjálfstæðar. Of kröfuharðar. Of menntaðar. Of erfiðar. Ekki nægilega móttækilegar. Ekki tilbúnar að „gefa venjulegum körlum séns“. Í sinni öfgafyllstu mynd birtist þessi orðræða innan ákveðinna incel-hópa þar sem höfnun kvenna er ekki aðeins túlkuð sem persónuleg höfnun heldur sem samfélagslegt óréttlæti. Þar verða konur ekki lengur einstaklingar með sjálfræði heldur auðlind sem sumir karlar telja sig eiga félagslegan eða siðferðilegan rétt á að fá aðgang að; tilfinningalega, félagslega eða kynferðislega. Það sem gerir þessa þróun sérstaklega hættulega er þó að hún sprettur ekki upp úr engu. Öfgakenndar hugmyndir verða ekki til í félagslegu tómarúmi. Þær vaxa innan menningar sem hefur þegar normalíserað vægari birtingarmyndir sömu hugmynda. Þegar samfélagið samþykkir ítrekað þá hugmynd að sjálfstæði kvenna sé orsök vanlíðunar karla skapast menningarlegt rými þar sem reiði gagnvart konum getur þróast frá gremju yfir í hugmyndafræði. Tilfinningaleg vinna og ósýnileg ábyrgð Þetta endurspeglar í raun mjög gamalgróna samfélagslega hugmynd; að konur beri ábyrgð á tilfinningalegum stöðugleika samfélagsins. Femínískir fræðimenn hafa lengi bent á hvernig konur sinna ósýnilegu tilfinningalegu vinnuframlagi sem heldur fjölskyldum, samböndum og samfélögum gangandi. Þær miðla átökum, viðhalda tengslum, sinna umönnun og bera ábyrgð á félagslegri samheldni með hætti sem sjaldan er skilgreindur sem raunveruleg vinna þrátt fyrir að samfélagið byggi á henni. Þegar karlar upplifa síðan félagslega einangrun virðist samfélagið ósjálfrátt leita aftur til kvenna eftir lausninni. Hvað séu þær hættar að gera? Hvers vegna séu þær ekki lengur tilbúnar að sinna þessari vinnu skilyrðislaust? Þar birtist djúpstæð kerfislæg tilfærsla ábyrgðar. Í stað þess að spyrja hvernig samfélagið móti karla til tengsla, tilfinningalæsis og félagslegrar ábyrgðar er sjónum beint að því hvort konur séu orðnar of frjálsar. Karlmennska, staða og félagslegt eftirlit Fræðimaðurinn Michael Kimmel hefur lýst þessu með hugtakinu aggrieved entitlement; særðri réttindatilfinningu sem verður til þegar einstaklingar upplifa að staða eða réttindi sem þeir töldu sjálfsögð séu ekki lengur tryggð. Sú upplifun þarf ekki að byggja á raunverulegri kúgun heldur getur orðið til þegar samfélagsleg yfirráð veikjast eða jafnast. Fyrir suma karla verður aukið sjálfstæði kvenna því upplifað sem missir, ekki vegna þess að konur hafi tekið eitthvað frá þeim, heldur vegna þess að ósýnileg forréttindi verða sýnileg þegar þau eru ekki lengur sjálfgefin. Þetta er lykilatriði vegna þess að samfélagsleg viðbrögð við jafnrétti mótast sjaldnast af staðreyndum einum saman heldur einnig af tilfinningalegri upplifun valds, stöðu og sjálfsmyndar. Fræðikenningar Raewyn Connell um ríkjandi karlmennsku sýna hvernig karlmennska verður að félagslegu agakerfi þar sem karlar læra snemma hvaða hegðun veitir viðurkenningu innan hópsins og hvaða hegðun leiðir til félagslegrar refsunar. Viðkvæmni, tilfinningaleg berskjöldun og félagsleg háð eru gjarnan tengd veikleika á meðan yfirráð, stjórn og tilfinningaleg fjarlægð eru verðlaunuð sem merki um „styrk“. Karlmennska verður þannig ekki aðeins sjálfsmynd heldur félagslegt eftirlitskerfi. Þögnin sem félagslegt vald Þar liggur einnig ein af meginástæðum þess að svo margir karlar standa hjá í umræðu um kynbundið ofbeldi eða kvenfyrirlitningu. Vandinn snýst ekki eingöngu um persónulegar skoðanir heldur félagslega stöðu innan karlahópa. Margir karlar óttast síður reiði kvenna en höfnun annarra karla. Að mótmæla niðrandi gríni, tala gegn klámvæðingu eða gagnrýna ofbeldismenningu getur haft raunverulegan félagslegan kostnað; missi viðurkenningar, stöðu eða samþykkis innan hópsins. Þess vegna verður þögnin svo valdamikil. Jackson Katz hefur bent á að samfélög viðhaldi ofbeldi ekki eingöngu í gegnum gerendur heldur einnig í gegnum áhorfendur sem velja að grípa ekki inn í. Þátttakaleysi er ekki félagslega hlutlaust. Hlutleysi innan misréttiskerfa verður sjaldnast raunverulegt hlutleysi heldur félagslegt samþykki sem gerir valdinu kleift að viðhalda sér án sýnilegrar mótspyrnu. Þegar niðrandi umræða um konur er afgreidd sem „grín“. Þegar klámvæðing og afmennskun fær að þróast án gagnrýni. Þegar reiði karla er útskýrð með hegðun kvenna fremur en þeim sjálfum. Þegar þögn gagnvart ofbeldi er túlkuð sem hlutleysi. Þá verður menningin sjálf hluti af vandanum. Hver ber ábyrgðina? Feðraveldið skaðar því ekki aðeins konur. Það skaðar einnig karla með því að takmarka tilfinningalegt rými þeirra, veikja tengslamyndun og byggja sjálfsmynd þeirra á stigveldi fremur en nánd. Mikilvægt er þó að halda því skýru að ábyrgðin á þeirri félagsmótun liggur ekki hjá konum. Samt virðist samfélagsleg orðræða ítrekað beina lausnaleitinni aftur að konum. Þær eru hvattar til að sýna meiri skilning gagnvart reiði og vanlíðan karla, vera þolinmóðari, minna dæmandi, útskýra jafnrétti betur og halda áfram að sinna því tilfinningalega vinnuframlagi sem hefur lengi reitt sig á, án þess að skilgreina það sem raunverulega ábyrgð eða vinnu. Á sama tíma sæta þær gagnrýni fyrir að vera þreyttar, varar um sig eða síður tilbúnar að sætta sig við sambönd og félagslegar væntingar sem byggja á ójafnvægi í tilfinningalegri ábyrgð, umönnun og valdi. Sú krafa er í sjálfri sér birtingarmynd valds. Hún byggir á þeirri hugmynd að konur beri áfram ábyrgð á því að halda samfélaginu tilfinningalega gangandi, jafnvel þegar þær sjálfar benda á að kerfið sé þeim skaðlegt. Og þar birtist einn hættulegasti þáttur backlash-menningar samtímans; að réttindi kvenna eru sífellt gerð skilyrt af því hvort þær haldi áfram að gera líf annarra bærilegt. Að frelsi þeirra sé ásættanlegt aðeins svo lengi sem það raski ekki tilfinningalegum, félagslegum eða pólitískum þægindum annarra. Svo lengi sem samfélagið heldur áfram að gera konur ábyrgar fyrir afleiðingum félagsmótunar karla verður umræðan um vanlíðan þeirra aldrei raunverulega heiðarleg. Hún verður aðeins enn ein leiðin til að færa konum ábyrgð á vanda sem þær bjuggu ekki til. Höfundur er meistaranemi í félagsráðgjöf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun