„Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Freyja Þórisdóttir skrifar 13. júní 2026 14:50 Samkvæmt skoðanagrein Geirdísar hafa íbúar verið í „drullusvaðinu á Sævarhöfða“ í þrjú ár þann 16. júní næstkomandi. Vísir/Anton/Aðsend Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook.
Á fundi borgarráðs í apríl var samþykkt að gerður yrði samningur fyrir hönd Samtaka hjólabúa, félags sem hafði þá ekki verið stofnað. Samningurinn var undirritaður af Heiðu Björgu Hilmisdóttur, þáverandi borgarstjóra, og forsvarsfólki samtakanna. Síðasta fimmtudag, þann 11. júní, fundaði borgarráð svo aftur og var þá ákveðið að segja upp samningum. Íbúunum kennt um slæma umgengni „Þetta eru stór vonbrigði vegna þess að við vorum loksins farin að sjá fram á það að við hefðum einhvern smá möguleika á því að komast í eitthvað fallegra umhverfi heldur en hérna á Sævarhöfðanum,“ segir Geirdís Hanna Kristjánsdóttir í samtali við blaðamann fréttastofunnar en hún er gjaldkeri Samtaka hjólabúa og er ein þeirra sem búa nú á Sævarhöfða. Hún skrifaði skoðanagrein sem var birt í dag þar sem hún lýsir því hversu misboðið sér sé og því hvernig fólk sem sé nýflutt á svæðið gangi illa um og svo sé íbúum hjólhýsahverfisins kennt um sóðaganginn. „Á svæðinu eru núna komnir einstaklingar sem að ganga um eins og verstu sóðar og við fáum náttúrulega stimpilinn af því að það veit enginn af því að það eru aðrir heldur en við á svæðinu,“ segir Geirdís. Sögðu samningnum upp tveimur mánuðum eftir undirritun Hjólhýsabyggðin hefur staðið við Sævarhöfða í tæp þrjú ár og var þar áður á tjaldsvæðinu í Laugardal. Eftir að auglýst var eftir nýtingu um þrjú þúsund og níu hundruð fermetra borgarlands í Gufunesi voru Samtök hjólabúa þau einu sem sóttu um og í kjölfarið var ákveðið að hjólhýsabyggðin yrði færð þangað. Nú, tveimur mánuðum síðar, hefur samningnum verið sagt upp en í honum er ákvæði um að báðum aðilum sé heimilt að segja samningnum upp með þriggja mánaða skriflegum fyrirvara. Samningurinn var til tveggja ára og hljóðaði leigugjaldið upp á tvö hundruð og tvö þúsund krónur á ári. Geirdís segist sár yfir því að Einar tali ekki við þau heldur um þau.Vísir/Vilhelm „Við erum mjög illa svikin,“ segir Geirdís og bætir við að hún hafi verið að lesa viðtal við Einar í gærkvöld, föstudaginn 12. júní, og segir hann þar hafa „bara logið blákalt“. Hann tali um að nýja hjólhýsabyggðin myndi kosta borgina fimmtíu til hundrað milljónir. „Hvar og hvenær segjum við eitt einasta aukatekið orð um það að borgin ætti að bera allan kostnað af því að koma okkar heimili í ásættanlegt form? Við vorum bara að biðja um það að borgin myndi leggja vatn og rafmagn að lóðamörkum eins og gert er þegar að hafnar eru framkvæmdir einhvers staðar annars staðar innan borgarmarkanna,“ segir Geirdís. Í fréttatilkynningu frá borginni þar sem greint var frá uppsögn samningsins segir að frumgreining á kostnaði við framkvæmdir til að undirbúa landið nemi um fimmtíu til hundrað milljónum króna. Reykjavíkurborg var gert að tengja svæðið við vatns- og rafveitu og koma fyrir salernis- og sturtuaðstöðu í gámaeiningum. Svæðið skuli einungis nýtt til óhagnaðardrifinna afnota Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir uppsögn samningsins vera ömurlega. Á liðnu kjörtímabili var hún fulltrúi í meirihluta. „Miður er að sjá að nýr hægri meirihluti segi upp afnotasamningi sem er nýgerður við hjólabúa með engin áform um annað fyrirkomulag,“ skrifar hún í færslu á Facebook. „Hjólabúar hafa lengi verið við Sævarhöfða í rými sem hentar ekki og því var ánægjulegt að viðeigandi staðsetning hafi verið fundin fyrir hópinn sem hafði búið við mikla óvissu. Í samningi um afnotasamning er skýrt kveðið á um að hið leigða svæði skuli eingöngu nýtt til óhagnaðardrifinna afnota og að hjólabúar greiði fyrir afnot af svæðinu.“ Sanna segir það hlutverk yfirvalda að mæta því að hópur fólks kjósi að búa með þessum hætti. Það sé því miður að hægri flokkarnir slíti samningnum svo skömmu síðar. Hitti þau aldrei augnliti til augnlitis Geirdís telur að sá meirihluti sem hafi verið í borgarráði þegar ritað var undir samningin hafi gert það af heilum hug en ekki áttað sig á því að það samningnum yrði sagt upp. „Ég held að þau hafi bara alls ekki átt von á því að það yrði strax farið í það að snúa ofan af því sem að þau voru búin að vera að vinna að,“ segir Geirdís og leggur áherlsu á mikilvægi þess að eiga samtöl við fólk sem ákvarðanir munu hafa bein áhrif á. „Það er nú bara eins og hefur verið. Þegar Einar Þorsteinsson var borgarstjóri þá sá hann aldrei sóma sinn í því að hitta okkur augliti til auglitis. Hann talaði bara um okkur,“ segir hún og bætir við að hann hafi verið „með yfirlæti eins og við værum bara eitthvað fimmtugasta flokks fólk sko“. Íbúarnir séu búnir að berjast við það að halda aðstöðu snyrtilegri en að það gangi illa þar sem „hvaða óþjóðalýður sem er getur, akandi sem gangandi, valsað fram og til baka með tilheyrandi ófriði á öllum tímum sólarhrings“. Hún vilji mest af öllu að „borgarstjóri myndi hérna setjast niður með okkur og ræða málin“.
Hjólhýsabyggð í Reykjavík Reykjavík Húsnæðismál Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira