Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Aron Guðmundsson skrifar 16. júní 2026 19:02 Lið Snæfells sem varð tvöaldur meistari árið 2016 vísir/hanna Stjörn meistaraflokks Snæfells greindi frá því í dag að félagið myndi ekki senda kvennalið til leiks á komandi tímabili í körfubolta. Áratugur er síðan Snæfell drottnaði yfir íslenskri kvennakörfu.
Ástæða ákvörðunarinnar er sú að of fáir leikmenn eru tiltækir til að halda úti samkeppnishæfu liði á næsta tímabili en Snæfell spilaði í fyrstu deild kvenna á síðasta tímabili. „Ákvörðunin var tekin að vel ígrunduðu máli eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið skoðaðir til að halda liðinu úti,“ segir í færslu stjórnar meistaraflokks Snæfells á samfélagsmiðlum. „Það er einlæg stefna stjórnarinnar að um verði að ræða tímabundinn dvala með það að markmiði að byggja upp sterkan grunn fyrir endurkomu liðsins.“ Körfuboltasamfélagið í Stykkishólmi búi að mörgum styrkleikum, svo sem góða íþróttaaðstöðu, öfluga þjálfun og öflugt skólastarf allt upp á framhaldsskólastig. „Með það að leiðarljósi vonumst við til þess að hægt verði að þróa enn frekar þetta góða umhverfi þannig að það verði áfram ákjósanlegur valkostur fyrir unga körfuboltaiðkendur til framtíðar. Þrátt fyrir þessa styrkleika stendur félagið, líkt og mörg félög á landsbyggðinni, frammi fyrir áskorunum þegar kemur að því að halda ungum iðkendum áfram í íþróttastarfi eftir grunnskóla. Á meðan á þessum dvala kvennaliðsins stendur verður sérstök áhersla lögð á uppbyggingu yngri flokka og markvissa undirbúningsvinnu með það að markmiði að skrá lið aftur til keppni um leið og forsendur leyfa.“ Áratugur er síðan að kvennalið Snæfell varð síðast Íslandsmeistari í körfubolta árið 2016. Það var þriðja tímabiliði í röð sem liðið var Íslandsmeistari og jafnframt þriðji Íslandsmeistaratitill kvennaliðs Snæfells frá upphafi. Það sama ár varð Snæfell einnig bikarmeistari.
Körfubolti Snæfell Stykkishólmur Mest lesið Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Íslenski boltinn Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Fótbolti Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Leik lokið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Íslenski boltinn Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Sjá meira