Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar 17. júní 2026 07:03 Þegar ríkið tók þá sögulegu ákvörðun að kaupa upp íbúðarhúsnæði í Grindavík í gegnum fasteignafélagið Þórkötlu var markmiðið skýrt: Að skapa öryggi fyrir íbúa sem höfðu misst heimili sín vegna náttúruhamfara og draga úr þeirri óvissu sem ríkti. Allt of lengi höfum við íbúar sem viljum heim, þurft að bíða eftir endurkaupaáætlun. Ef ástæðan er sú að atburður hamfaranna er ekki liðinn þurfum við að hugsa hlutina upp á nýtt. Undirrituð leggur til sérstakrar afnotaleiðar á fyrrum húsnæði íbúa í Grindavík. Rökin eru þríþætt: 1. Vernd ríkisfjárfestingar – eignir haldast heilar og í verði. 2. Tekjur fyrir Grindavíkurbæ – fasteignagjöld af afnotarétti styrkja enduruppbyggingu sveitarfélagsins. 3. Endurreisn samfélags – fólk fær raunverulegt val um að búa í heimabæ sínum á meðan óvissuástand varir. Ákvörðun um uppkaup húsnæðis í Grindavík var tekin eftir þrýsting um að tryggja íbúum á svæði sem ekki var talið öruggt, búsetu annars staðar. Rúmum tveimur árum síðar, stöndum við að mínu mati frammi fyrir þessari spurningu: hvernig nýtum við þessa gríðarlegu fjárfestingu á meðan beðið er eftir því að náttúran ljúki sínum kafla? Það er öllum ljóst að á meðan eldvirknin á Sundhnúksgígaröðinni er ekki að fullu gengin yfir eru kaup einstaklinga á fasteignum í Grindavík flókin. Lánamarkaðurinn er varfærinn og tryggingamál sömuleiðis. Það er því ekki raunhæft að ætla að hefðbundinn fasteignamarkaður taki við á næstunni. Á meðan standa hundruð húsa í eigu ríkisins auð eða vannýtt. Hús sem þurfa umhirðu og notkun. Hús sem voru keypt fyrir skattfé landsmanna og allir Íslendingar hafa hag af því að haldi verðgildi sínu og gæðum. Það er einföld staðreynd að hús sem standa auð grotna niður. Þau þurfa viðhald, eftirlit og líf. Mannlaus hús eldast hraðar en hús sem eru í notkun. Þess vegna tel ég að skoða þurfi nýja leið. Í stað þess að líta á þessar fasteignir sem eignir ríkisins sem ekki má nýta að fullu, mætti líta á þær sem auðlind sem þarf að nýta á skynsamlegan hátt. Líkt og við nýtum fiskimið, orku eða aðrar þjóðarauðlindir með afnotarétti mætti skapa sérstakt afnotakerfi fyrir fasteignirnar í Grindavík. Fyrrum íbúar sem eru með hollvinasamning gætu áfram haft afnot af sínum heimilum, ekki aðeins til tímabundinnar dvalar heldur einnig til búsetu fyrir þá sem það kjósa. Um væri að ræða sérstakan afnotarétt en ekki hefðbundið eignarhald á meðan óvissuástandið varir. Þeir sem velja fasta búsetu myndu greiða fyrir hita og rafmagn eins og hollvinasamningur gerir ráð fyrir, en einnig fasteignagjöld til Grindavíkurbæjar. Það myndi skipta miklu máli og væri mikilvægt skref í að gera sveitarfélagið fjárhagslega sjálfbært. Í dag greiðir fasteignafélagið Þórkatla ekki fasteignagjöld til sveitarfélagsins. Fyrir bæjarfélag sem hefur tekist á við einar stærstu náttúruhamfarir í nútímasögu Íslands skiptir hver króna máli. Föst búseta með afnotarétti gæti skapað mikilvægar tekjur fyrir Grindavíkurbæ á sama tíma og húsnæðið héldist í notkun. Þetta væri í raun fundið fé fyrir ríkið. Ríkið myndi verja þá fjárfestingu sem þegar hefur verið ráðist í, koma í veg fyrir að eignir rýrnuðu og viðhalda verðmæti þeirra. Á sama tíma fengi samfélagið tækifæri til að byggjast upp á ný, skref fyrir skref. Grindavík hefur aldrei snúist eingöngu um steinsteypu og byggingar. Grindavík er samfélag fólks, fjölskyldna, vina og nágranna. Hér hefur íþróttalíf skipað stóran sess, fyrirtækin eru öflug og menning okkar hefur mótast í aldanna rás. Samfélagið var einstakt. Við getum seint stjórnað eldvirkninni. En við getum stjórnað því hvernig við bregðumst við henni. Í stað þess að láta heilu hverfin standa mannlaus væri hægt að leyfa lífinu að halda áfram þar sem fyrirsjáanleiki hamfaranna í nálægð bæjarins er orðinn þónokkur. Það þarf að gefa fólki val og gefa samfélaginu tækifæri. Á sama tíma þarf að verja þá fjárfestingu sem íslenska ríkið og þar með þjóðin öll hefur lagt í Grindavík. Ríkið sendi skýr skilaboð þegar það reisti varnargarðana. Grindavík væri vel þess virði að verja. Af hverju á að verja húsin fyrir hrauni en ekki fyrir verðrýrnun og eyðileggingu sem fylgir því að halda þeim mannlausum? Það er kominn tími til að horfa á fasteignirnar í sem þjóðarauðlind sem á að nýta af skynsemi, ábyrgð og með framtíð samfélagsins í Grindavík að leiðarljósi. Grindavík er sannarlega þjóðarverðmæti sem þarf að nýta. Höfundur er Grindvíkingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar