Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Lovísa Arnardóttir skrifar 21. júní 2026 18:03 Brynja segir lífríkið eiga að njóta vafans og ekki verði haldið áfram að bora fyrr en hægt er að tryggja það. Veitur og Vísir/Bjarni Athuganir óháðra sérfræðinga í Varmá eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til fækkunar fugla. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun.
Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun. „Bara um leið og við áttuðum okkur á því að litáhrifin á Varmá voru meiri en við bjuggumst við og í raun og veru að hérna mótvægisaðgerðirnar okkar til að fjarlægja grugg úr vatninu voru ekki að virka sem skyldi. Að þá stöðvuðum við borunina strax af því að við viljum í alltaf að náttúran njóti vafans,“ segir Brynja Ragnarsdottir forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum. Veitur ætla að bora víða um land eftir jarðhita. Vísir/Bjarni Vinna enn að lausnum Samkvæmt nýjustu tilkynningu vinna Veitur enn að því að þróa lausnir til að koma í veg fyrir að grugg fari í árfarveginn þegar byrjað verður að bora aftur eftir heitu vatni. Í nýjustu tilkynningu Veitna um málið kemur fram að þau hafi síðustu vikur unnið með sérfræðingum og eftirlitsaðilum að mati á umhverfisáhrifum framkvæmdanna. Sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun og Verkís hafi farið í frumathuganir á stöðu lífríkis Skammadalslækjar og Varmár, og VSÓ, sem fer með umhverfiseftirlit framkvæmdarinnar fyrir Veitur fylgist áfram með svæðinu og tekið sýni til efnagreininga. Helstu niðurstöður athugana sem nú liggja fyrir eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Athuganir VSÓ á vettvangi hafi staðfest að fiskur er enn í ánni og jafnframt kemur fram í tilkynningu að engin gögn liggi fyrir sem sýni fækkun fugla eða varanleg áhrif á fuglalíf. „Grugg sést á hluta árbotnsins og á stöku stöðum á bökkum og steinum þar sem vatnsborð hefur lækkað,“ segir í uppfærslu Veitna. Brynja segir Veitur ætla að vinna borframkvæmdir sínar í sátt við náttúruna og samfélagið á sama tíma og þau ætla að tryggja nægt heitt vatn til allra heimila á höfuðborgarsvæðinu. „Af því að samfélagið okkar er að stækka mjög hratt og eftirspurn eftir heitu vatni er að aukast. En við þurfum alltaf að leyfa náttúrunni að njóta vafans. Nú hafa óháðir sérfræðingar tekið út lífríkið í og við Varmá og við erum búin að fá niðurstöður frá þeim sem líta sem betur fer vel út. Engar vísbendingar sem hafa komið fram í þeirra niðurstöðum um fiskdauða eða umfangsmikið tjón á lífríki árinnar eða fækkun fugla.“ Fylgjast áfram náið með Hún segir að Veitur fylgist áfram náið með í samráði við sérfræðinga frá Hafrannsóknastofnun, Verkís og VSÓ sem hafi sömuleiðis metið að ef það hafi verið áhrif á lífríkið þá séu þau tímabundin. „Það er alveg ljóst að við byrjum ekki að bora aftur á svæðinu fyrr en það er búið að tryggja lausn sem að kemur í veg fyrir að grugg fari í árfarveginn.“ Hún segir til dæmis unnið með sérfræðingum að því að finna lausn sem geti alveg hreinsað grugg úr vatninu. „Svo höfum við líka lagt lögn í óvirka nærliggjandi borholu og erum að skoða hvort við getum ekki hreinlega skilað vatninu þangað. Þetta nýtist okkur í öllum öðrum borunum af því að við hérna erum að fara að bora heilmikið. Skilja áhyggjur fólks Íbúafundur Veitna verður haldinn í Hlégarði mánudaginn 22. júní kl. 19.30. „Hann er haldinn í góðri samvinnu við Mosfellsbæ. Bæjarstjórinn og óháðir sérfræðingar verða meðal annars á fundinum og við ætlum að fara yfir stöðu mála, þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í og næstu skref. Við viljum í raun og veru bara hlusta á áhyggjur fólks af því við skiljum þær mjög vel og svara þeim eins vel og við getum og það eru öll velkomin á þennan fund,“ segir Brynja að lokum. Í tilkynningu Veitna kemur jafnframt fram að Verkís hafi bent á að möguleg áhrif á botndýralíf og fæðuframboð vatnafugla séu, ef þau hafa átt sér stað, líklegast tímabundin, en samanburðargögn fyrir vatnshlotið frá fyrri árum skorti þó að hluta. „Sýni sem tekin voru í byrjun júní benda til þess að gruggið hafi að mestu verið úr náttúrulegum leirsteindum, einkum klóríti og smektíti, sem finnast náttúrulega í bergi á jarðhitasvæðum,“ segir í tilkynningunni og að rannsókn á málmum úr sýnum af borsvæðinu bendi einkum til hækkaðs styrks kopars í frárennsli frá bornum. Það er þá fyrir blöndun í árfarveginn, og í borleðju en aðrir málmar sem viðmið liggja fyrir um í borleðju voru undir viðmiðum reglugerðar um mengaðan jarðveg. Bíða niðurstaðna um ástand fiskistofna VSÓ bendir á í túlkun á niðurstöðunum að þær þurfi meðal annars að taka tillit til náttúrulegs bakgrunnsstyrks málma í íslensku jarðefnaumhverfi og telur að helstu mögulegu áhrif svifsins á lífríki árfarvegarins kunni fremur að tengjast eðlisfræðilegum þáttum, svo sem gruggi og setmyndun, en beinum eiturefnaáhrifum einstakra efna. Í tilkynningu Veitna segir að beðið sé niðurstaðna ítarlegri athugana Hafrannsóknastofnunar á ástandi fiskistofna og gróðurs í ánni. Á grundvelli þeirra niðurstaðna verður tekin afstaða til frekari rannsókna og vöktunar á lífríki árinnar og umhverfi hennar, í samræmi við ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og annarra sérfræðinga eftir því sem tilefni gefur til.
Mosfellsbær Umhverfismál Orkumál Jarðhiti Tengdar fréttir Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. 27. maí 2026 06:30 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Sjá meira
Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. 27. maí 2026 06:30