Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 07:32 Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR (t.h. á mynd) og Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku (t.v. á mynd), undirrituðu samninginn í Sólinni í HR á dögunum. Aðsend Ný staða kjara- og atvinnulífsfulltrúa háskólanema verður sett á laggirnar sem hluti af samstarfssamningi sem Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR) og Viska hafa gert með sér. Slík þjónusta hefur ekki áður verið í boði í HR fyrir nemendur.
Í sameiginlegri tilkynningu kemur fram að fulltrúinn mun veita þjónustu og ráðgjöf auk þess að vinna að því að efla vitund háskólanema um réttindi sín á vinnumarkaði. „Við hjá SFHR erum ótrúlega stolt af því að geta nú boðið nemendum í HR upp á þjónustu sem tengist kjörum og réttindum á vinnumarkaði. Það hefur löngum verið talað um HR sem skóla atvinnulífsins og þess vegna teljum við stöðuna löngu tímabæra. Þetta hefur aldrei verið gert áður hér í HR og því er þetta sögulegur áfangi í þjónustu við nemendur. Við hjá SFHR erum ánægð með samstarfið við Visku og hlökkum til að þróa þetta í góðu samstarfi við Visku,“ segir Rúnar Gauti í tilkynningu. „Staða kjara- og atvinnulífsfulltrúa háskólanema er að norrænni fyrirmynd þar sem hún hefur sannað mikilvægi sitt. Í samtölum okkar við háskólanema höfum við fundið fyrir því að eftirspurn eftir fræðslu um kjara- og réttindamál hjá ungu fólki er mikil og við viljum svara því kalli. Með því að koma stöðunni á laggirnar viljum við leggja ríka áherslu á að styðja við ungt fólk sem er að afla sér þekkingar og háskólamenntunar, enda gríðarlega mikilvægur hópur fyrir framtíðina. Þannig sýnum við í verki að háskólanemar skipta máli,” segir Gauti í tilkynningu.
Kjaramál Háskólar Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira