Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 13:02 Þjófurinnn stal skarti eins íbúa. Myndin er úr safni. Vísir/Getty Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri á stöð 2, lögreglustöð í Hafnarfirði, segir erfitt og andstyggilegt að brotist hafi verið inn í íbúðir fyrir aldraða og skartgripum stolið. Greint var frá þjófnaðinum í dagbók lögreglunnar í morgun. „
Þetta er dálítið skrítið mál. Þetta á sér stað í íbúðum fyrir aldraða,“ segir hann. Þangað hafi komið kona sem þóttist vera frá heimaþjónustu og stal skartgripum af einum íbúa sem tilkynnti það til lögreglu. Sævar segir lögreglu ekki hafa fengið formlegar tilkynningar um fleiri tilvik en konan sem tilkynnti þjófnaðinn hafi greint lögreglu frá því að hún hafi séð sömu konu koma í íbúðirnar í síðustu viku „til að þjónusta annan íbúa“. Sævar segir lögreglu ekki hafa annað í höndunum en það og því sé aðeins þetta eina tilfelli til rannsóknar. Hann segir íbúa á varðbergi og tíminn verði að leiða það í ljós hvort að um fleiri tilvik sé að ræða. „Konan talaði erlent tungumál og við höfum fengið það staðfest hjá heimaþjónustunni sem þjónustar þessar íbúðir að hún var ekki á þeirra vegum,“ segir Sævar. Tók eyrnalokka og armbönd Hann segir lögreglu ekki vita hver konan er og að hún hafi tekið bæði eyrnalokka og armbönd. Hann segir þetta erfitt því í þessum íbúðum sé aldrað fólk sem oft á tíðum áttar sig ekki endilega á aðstæðum. „Þetta er mjög erfitt að eiga við, þarna er fullorðið fólk sem áttar sig ekki á að það geti verið málum blandið. Þetta er ekki auðvelt og auðvitað mjög andstyggilegt,“ segir hann. Hann segir mjög mikilvægt að fólk hugi að því hverjir eru að koma inn til þeirra og hvað þau eru að gera. Það sé því miður oft erfitt þegar fólk áttar sig ekki endilega á aðstæðum vegna veikinda eða aldurs.
Lögreglumál Hafnarfjörður Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira